Traust fjármálstjórn XD í Garðabæ er jafn trúverðug og sagan af Jesú gangandi á vatni Þorkell Máni Pétursson skrifar 30. maí 2014 16:00 Ef ég myndi segja nágranna mínum að ég hefði séð mann ganga á vatni og breyta vatni í vín þá myndi hann segja að ég væri að ljúga eða biðja mig að sanna það. En af því að það stóð í bók fyrir rúmum 2000 árum þá trúir 60% af fólki þessu ennþá. Þetta er sama prósentutala og hyggst kjósa Sjálfstæðisflokkinn í Garðabæ. Það er fólk sem er búið að láta segja sér það 1000 sinnum að bærinn sé vel rekinn og ef einhver bendir á eitthvað annað er það venjulega leiðrétt í Garðapóstinum eða með einhverjum óskiljanlegum þvættingi frá fulltrúum meirihlutans. Menn sem benda á bruðlið og vitleysuna sem er í gangi eru meira segja stundum kallaðir kommúnistar. Það er svo sem í takt við þekkingarleysi og deyfð bæjarbúa á þessum málum. Því erfitt getur reynst að finna bæjarfélag sem er eins líkt gömlu einræðis kómmúnistaríki og Garðabær með málgagnið sitt Pravda eitt blaða talandi upp ágæti meirihlutans. Að vísu er ekki hægt að sakast bara við bæjarblaðið fyrir að hafa ekki vakandi auga með óráðsíunni sem hefur verið í fjármálum Garðarbæjar síðustu ár. Minnihlutinn hefur á löngum köflum stutt þetta kjaftæði og ekki látið í sér heyra. Ef undan er skilið er M-listi FÓLKSINS- í bænum. Bullið í rekstri sjálfstæðismanna í Garðabæ er einmitt algerlega ævintýralegt. Það eina sem þeir geta hrósað sér fyrir er lágt útsvar. Lágu útsvari koma þeir á með hærri þjónustugjöldum. En gleymum því ekki að gjöld eru skattar, þó svo að hinir sjálfskipuðu talsmenn einstaklingsfrelsis haldi öðru fram þegar það hentar þeim. En af afrekum Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ í peningamálum. Eða því sem þeir vilja kalla ábyrgð, ráðdeild og trausta fjármálastjórnun:*Í Garðabæ byggðum við fimleikahús fyrir um milljarð króna. Það hús er ekki fyrir stráka og rétt rúmlega helmingur iðkenda eru Garðbæingar.*Ekkert bæjarfélag á landinu ráðstafar eins miklum peningum miðað við íbúafjölda til krikjusafnaðar og Garðabær. Þó það sé alls ekki í verkahring bæjarins. Síðast settu þeir yfir 15 milljónir í kirkjuorgel. Það gerðu þeir í nafni menningar í Garðabæ.*Meirihluti bæjarstjórnar í Garðabæ klippti á borða og bauð uppá pylsur þegar hann opnaði bílastæðakjallara sem kostaði rétt rúman hálfan milljarð. Verðmiðinn á hvert stæði er ca 3,6 milljónir.*Saga Garðarbæjar, saga 50 ára sveitafélags, sem aldrei hefur gert út á neina atvinnustarfsemi og náði íbúðartölunni 10 þús á síðasta áratugi. Kostnaður bæjarbúa er ekki undir 70 milljónum.*Dýrasti bæjarstjóri landsins. Sem þiggur tæpar 2 milljónir á mánuði með bílastyrk í laun. Borgarstjóri Reykjavíkur er með 1,2 milljónir. Ofan á þetta má síðan bæta framtíðarplönum sjálfstæðismanna að taka yfir Fjölbrautaskólann í Garðabæ sem sýnir svo um munar metnaðarfull plön þeirra um að stækka rekstur og kostnað hins opinbera, svipað og þeir gerðu með eftirminnilegum hætti árin fyrir hrun. Þess má geta að innan við helmingur nemenda FG eru Garðbæingar (Hverjir eru kommar?). Þessi atriði eru langt frá því að vera það kjánalegasta eða hlægilegasta í rekstri sjálfstæðismanna í Garðabæ. Stefna þeirra að reisa annan draugamiðbæ ásamt íbúðum er í anda þess samning sem þeir gerðu við Klasa um bygginguna. Sá samningur fer líklega í sögubækurnar fyrir að vera lélegur. Eða kannski þegar öllu er á botnin hvolft kemur í ljós að hann var tilraunasamningur og þá er víst allt leyfilegt til dæmis að deila út almannafé til flokkssystkina sinna án útboða. Það er þetta sem þeir kalla ábyrgð, ráðdeild og traust fjármálastjórnun. Á sama tíma tekur þessi meirihluti í nafni okkar bæjarbúa enga samfélagslega ábyrgð. Því ef þú þarft hjálp í Garðabæ er besta ráðið sem þú færð er að flytja í Hafnafjörð. Fólkið er gott en flokkurinn er drasl. Ég er Garðbæingur. Í Garðabæ er gott fólk og gott að búa, ég er stoltur Garðbæingur og Stjörnumaður og það vita allir sem mig þekkja. Ég ver mína sveitunga þótt þeir séu ekki sammála mér í pólitík. Ég hef varið fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins þegar veist hefur verið að honum með ósanngjörnum hætti. Það geri ég því ég veit að hann er það sem getur kallast “gott fólk” en þetta góða fólk er það sem gerir bæinn minn svo frábæran. Í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn er í dag mikið af góðu fólki. Áslaug, Almar, Siggi mark og hann Stulli minn. Allt saman toppfólk sem ég veit að elskar þennan bæ alveg jafn mikið og ég. Ég veit að þau, ásamt öðrum vinum mínum úr Sjálfstæðisflokknum, eru ekkert voðalega sátt við að ég sé að skammast í flokknum. Við eigum bara öll að brosa og láta eins og allt sé frábært. En sannir vinir segja sannleikann sama hversu sár hann er og sannleikurinn er sá að brandarinn er búinn. Staðreyndin er sú að Sjálfstæðismenn í Garðabæ kunna ekki að fara með peninga. Bæjarfélag sem ekki getur séð fyrir sínum smæstu íbúum er aumt bæjarfélag og það erum við svo sannarlega í dag. Það var ekki fólkið í bænum sem gerðu okkur að aumu bæjarfélagi heldur þessi meirihluti sem setið hefur í sex áratugi. Þó við munum öll hlæja næsta áratuginn af skýringum um “tilraunarsamning” við Ásdísi Höllu og aðra flokksbunda sjalla þá finnst mér ekki fyndið að styrkja ekki Stígamót, heimilslausa, Kattholt og fleiri samfélagslega hluti. Því konur verða fyrir ofbeldi í Garðabæ, við höfum átt okkar heimilislausu útigangsmenn og persneskir kettir af Arnarnesinu koma líka í Kattholt. Í spilaranum hér fyrir neðan er lag samið af Pétri Ben Garðbæing. Myndbandið er eftir Frosta Runólfsson Garðbæing. Lagið er samið til minningar um Loft Gunnarsson útigangsmann og Garðbæing. Þegar Loftur þurfti hjálp var honum ráðlagt að flytja lögheimilið sitt. Er þetta Garðabæjarsamfélagið sem þú ert að tala um Gunnar Einarsson?Höfundur er dagskrástjóri, umboðsmaður, faðir og Garðbæingur, sem gefur upp stuðning sinn við M–lista FÓLKSINS- í Garðabæ í von um betri Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Forsetakosningar 2016 Skoðun Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun