Skoðun

Björt framtíð í Garðabæ

Guðrún Elín Herbertsdóttir skrifar
Nýir tímar kalla á nýtt fólk og nýja hugsun. Við erum fjölbreyttur hópur og við viljum að Garðabær sé fyrir alla. Þessu til stuðnings horfir Björt framtíð á lífið sjálft:

Lífshlaupið og öll aldursskeið þess.

Lífsréttindin sem allir eiga rétt á að búa við.

Lífsgæðin sem við búm við og byggjast á velferð, góðri heilsu og hamingju bæjarbúa.

Styðjum Lífshlaupið

Við viljum finna lausnir á dagvistun yngstu barnanna. Við teljum að aukin samstaða á milli foreldra og skóla muni auka velferð unga fólksins. Við viljum fjárhagslega ábyrgð og skynsemi í ákvörðunum með heildarmyndina í huga. Það þarf fjölbreyttari kosti í húsnæðismálum fyrir öll stig lífshlaups einstaklinga og fjölskyldna. Við viljum sjá fjölbreyttari kosti fyrir fyrirtæki í atvinnurekstri með góðri blöndu smærri, millistórra og stærri fyrirtækja. Styðja þarf fyrirtæki á öllum stigum lífshlaups þeirra auk þess að auka svigrúm fyrir skapandi greinar. Við leggjum mikla áherslu á efri árin. Þar viljum við sjá fjölbreyttari kosti í húsnæðismálum, fjölbreyttari möguleika á umönnun auk þess sem eldri borgarar eiga rétt á fjölbreyttari tækifærum til þátttöku í samfélaginu og í félagslífi.

Tryggjum Lífsréttindin

Við viljum sjá jafnt aðgengi allra að þjónustu og lífsgæðum. Við viljum þjónusta bæjarbúa með virðingu og með tilliti til ólíkra þarfa, uppruna og stöðu. Það á að vera réttur allra að geta tjáð fjölbreyttar skoðanir sínar um málefni bæjarins og við viljum auka gagnsæi í stjórnsýslu.

Aukum Lífsgæðin

Við viljum styðja við velferð, heilsu og hamingju bæjarbúa. Það eiga allir rétt á því að líða vel. Við viljum samfélagslega ábyrgð í félagsmálum, fjölbreytt framboð tómstunda, íþrótta og afþreyingar fyrir alla aldurshópa og við allra hæfi. Við viljum mynda markvissa stefnu til eflingar lýðheilsu á öllum sviðum. Við viljum nýta betur það sem við eigum nú þegar. Við erum umvafin einstakri náttúru og að henni þarf að hlúa og búa til fjölbreytt tækifæri fyrir íbúa til að njóta hennar. Það þarf að friða það mikilvægasta í  umhverfinu fyrir komandi kynslóðir, hraun, fjöru, vötn og holt. Við viljum aðgengi fyrir alla að sem flestum útivistarsvæðum bæði á sjó og landi. Við viljum sjá heilsteypt skipulag bæjarins sem styður við gæði lífsins. Við viljum fjölbreyttari tækifæri til að njóta menninga og lista. Við viljum byggja upp hjartað í bænum með fleiri tækifærum fyrir íbúa til að kynnast og tengjast.

Með ofangreint að leiðarljósi bjóðum við okkur fram til þjónustu við bæjarbúa næstu fjögur árin. Við leggjum fram áhuga okkar, innsæi, reynslu og þekkingu til þess að byggja upp enn betri bæ sem er fyrir alla, bæ þar sem hjartað slær.

Það verður gaman í Garðabæ.  

X-Æ í maí




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×