Skoðun

Vagga menningar og lista

Hreiðar Örn Zoega Stefánsson skrifar
Mosfellsbær hefur í gegnum tíðina alið marga menningar- og listamenn og er þar nóbelsskáldið efst í huga fólks ásamt myndlistarkonunni Steinunni Marteinsdóttur og Guðmund frá Miðdal. Þá má einnig nefna Lárusdætur, og hljómsveitina Sigurrós sem hóf sinn feril í  Mosfellsbæ. Gréta Salóme, tónlistarmaður, söng og spilaði sig inn í hjörtu íslensku þjóðarinnar og nýjasta dæmið um farsæla tónlistarmenn úr Mosfellsbæ er hljómsveitin Kaleo sem stofnuð var fyrir um einu og hálfu ári síðan og fékk verðlaun sem bjartasta vonin á íslensku tónlistarverðlaununum 2013.

Menningarlíf í Mosfellsbæ er blómlegt og hafa hér búið og starfað  fjölmargir af  þekktustu listamönnum þjóðarinnar. Til að efla  menningar- og listalíf í Mosfellsbæ enn frekar viljum við stuðla að frelsi til athafna og sjá til þess að hugmyndaauðgi og listsköpun fái andrými. Áfram verður sótt fram við að  gera Mosfellsbæ að frjóum reit fyrir menningingarlíf og menningartengda ferðamennsku. Þar mun Listasalurinn, Hlégarður og Álafosskvos marka Mosfellsbæ sérstöðu í menningarlífi á höfuðborgarsvæðinu.


Menningartengd ferðaþjónusta

Bæjarhátíðirnar í Mosfellsbæ hafa verið að festa sig í sessi á undanförnum árum. Við viljum styðja enn frekar við  helstu menningar- og listahátíðir bæjarins eins og Í túninu heima, Menningarvorið, Þrettándagleðina og 17. júní hátíðina. Þá viljum við skoða möguleika á að stofna til hausthátíðar Menningarhaust í Mosfellsbæ. Tvinna þarf sögu og menningu Mosfellsbæjar inn í þessar hátíðir og ætlum við að styðja þannig við menningartengda ferðaþjónustu. Þá horfum við sérstaklega til sögu bæjar og sveitar. Þar verði sérstaklega horft til Mosfellsdals, Álafosskvosar, fornleifa við Hrísbrú, ullar og stríðsminja. Lengi hefur verið áhugi fyrir því að stofna menningarás sem teygir sig frá miðbænum, fram hjá Hlégarði og að Álafossi. Við þurfum í kjölfarið að fjölga fræðsluskiltum með menningartengdum fróðleik í bænum til þess að gera söguna okkar sýnilegri.

Hvetjum til samvinnu

Til þess að menningarlífið fái að blómstra í bænum þarf að hlúa vel að því. Í Mosfellsbæ er starfandi fjöldi kóra sem við ætlum okkur að hlúa að ásamt hinu öfluga starfi leikfélagsins. Það getur skipt miklu máli fyrir árangurinn að fólk vinni vel saman. Ef við leggjum saman krafta okkar og hvetjum til aukinnar samvinnu listafólks í Mosfellsbæ ætti okkur að ganga enn betur að ná því markmiðið að þegar hugsað er um menningartengda ferðaþjónustu hugsi fólk til Mosfellsbæjar.



Við eigum að vera stolt af okkar listamönnum og hampa þeim í bæjarfélaginu. Við viljum að  Mosfellsbær eigi eða varðveiti listaverk eftir listamenn sem starfa og starfað hafa í  Mosfellsbæ og að þau séu aðgengileg bæjarbúum. Við þurfum að fjölga útilistaverkum á sýnilegum stöðum í Mosfellsbæ, sérstaklega þeim sem eru eftir mosfellska listamenn.

Fjárhagsstaða Mosfellsbæjar er góð og sveitarfélagið nýtur trausts. Við erum stolt af þeirri miklu uppbyggingu sem átt hefur sér stað í Mosfellsbæ á síðustu árum. Bæjarfélagið er fyrir vikið betur í stakk búið til að takast á við framtíðina. Á þessum trausta grunni viljum við áfram byggja bæinn okkar upp að hann festi sig enn frekar í sessi sem vagga menningar og lista.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×