Innlent

Segir ákæru gegn hjúkrunarfræðingi áfall

Hrund Þórsdóttir skrifar
Í föstudagspistli sínum gerir Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, ákæru gegn spítalanum og hjúkrunarfræðingi þar, að umfjöllunarefni sínu.
Í föstudagspistli sínum gerir Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, ákæru gegn spítalanum og hjúkrunarfræðingi þar, að umfjöllunarefni sínu.

Síðustu daga hafa Stöð 2 og Vísir fjallað um ákæru gegn Landspítalanum og hjúkrunarfræðingi þar fyrir manndráp af gáleysi en þetta er í fyrsta sinn sem spítalinn og starfsmaður hans eru ákærðir fyrir atvik af þessu tagi.

Í pistli sem Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, birti í dag segir að spítalinn tilkynni sex til tíu alvarleg atvik árlega og sé tilkynningaskyldan ríkari en til að mynda í Noregi. Unnið hafi verið markvisst að bættri öryggismenningu og það að segja frá mistökum eigi að leiða til umbóta en ekki til leitar að sökudólgum. Þar segir einnig: „Í opinni öryggismenningu eiga heilbrigðisstarfsmenn að vera óhræddir við að skrá og upplýsa það sem aflaga fer og allt sem dregur úr vilja þeirra eða getu til þess er afturför. Í því ljósi er ofangreind ákæra bæði vonbrigði og vegferðinni að öruggum spítala talsvert áfall.“

„Þetta eru ákveðnar krossgötur, það skal alveg viðurkennt,“ segir Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra. „Þetta er nýtt tilvik og við þurfum að höndla það sem slíkt.“

Ráðherra vill ekki tjá sig um hvort atvikið sé afleiðing aðstæðna á spítalanum eða hvort ákæran varpi ábyrgð sem liggi í það minnsta að einhverju leyti hjá ríkinu yfir á starfsmanninn, en segir málið beina sjónum að því hvernig sjúklingar verði best varðir.

„Það hefur verið rekin sú stefna af hálfu Landspítalans að draga fram öll þau atvik sem flokkast undir mistök og við eigum auðvitað að leggja Landspítalanum lið í því, almenningur og heilbrigðisyfirvöld,“ segir Kristján.

En segir sig ekki sjálft að þetta mun hræða fólk frá því að viðurkenna mistök?

„Ég vona að svo verði ekki því það er grundvallaratiði í heilbrigðisþjónustunni að mistök sem kunna að verða séu nýtt til að draga af þeim lærdóm.“

Forstjóri Landspítalans segir að ákæran sé áfall í vegferðinni að öruggum spítala. Tekur þú undir þær áhyggjur?

„Það kann vel að vera að þetta hnykki aðeins við fólki en ég vona að það verði frekar hvatning til að gera enn betur, því inni á Landspítalanum eins og í allri heilbrigðisþjónustu Íslendinga eru unnin afrek á hverjum einasta degi.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×