NBA: OKC vann upp sjö stiga forskot á síðustu 50 sekúndunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. maí 2014 07:30 Russell westbrook fagnar með Kevin Durant í nótt. Vísir/AP
Oklahoma City Thunder náði dramatískri endurkomu á síðustu mínútunni þegar liðið komst í 3-2 á móti Los Angeles Clippers í nótt í einvígi liðanna í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Indiana Pacers liðinu tókst ekki að klára einvígið á móti Washington Wizards. Russell Westbrook skoraði 38 stig og hitti úr þremur vítaskotum 6,4 sekúndum fyrir leikslok þegar Oklahoma City Thunder vann 105-104 sigur á Los Angeles Clippers á heimavelli í nótt og komst í 3-2 í þessu frábæra einvígi. Westbrook var einnig með 6 stoðsendingar, 5 fráköst og 3 stolna bolta. Los Angeles Clippers virtist vera með leikinn í sínum höndum, 104-97 yfir þegar 50 sekúndur voru eftir. Kevin Durant skoraði þá fimm stig úr tveimur skotum eftir stoðsendingar frá Russell Westbrook sem síðan tryggði liði sínu sigurinn með þremur vítum eftir að Chris Paul var dæmdur brotlegur. Kevin Durant skoraði 10 af 27 stigum sínum á síðustu 3 mínútum og 23 sekúndum leiksins en enginn annar hjá OKC heldur en stórstjörnurnar tvær komust yfir tíu stigin í leiknum. Blake Griffin var með 24 stig og 17 fráköst fyrir Clippers-liðið, Jamal Crawford skoraði 19 stig og Chris Paul var með 17 stig og 14 stoðsendingar. Marcin Gortat var með 31 stig og 16 fráköst þegar Washington Wizards vann 102-79 útisigur á Indiana Pacers. Töframennirnir tóku 39 fleiri fráköst en heimamenn og staðan er nú 3-2 fyrir Indiana. John Wall var með 27 stig fyrir Washington en David West skoraði 17 stig fyrir Indiana.
NBA Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Sjá meira