Steve Kerr sagði nei við Phil Jackson - verður þjálfari Golden State Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. maí 2014 08:00 Steve Kerr. Vísir/Getty
Steve Kerr, fyrrum margfaldur meistari í NBA-deildinni og núverandi körfuboltaspekingur á TNT, verður næsti þjálfari Golden State Warroirs. Kerr var einnig með tilboð um að taka við liði New York Knicks en sagði nei við gamla þjálfara sinn Phil Jackson og skrifaði þess í stað undir fimm ára samning við Golden State. Steve Kerr fær 25 milljónir dollara fyrir samninginn sem eru um 2,8 milljarðar íslenskra króna. Börnin hans Kerr eru öll í háskóla eða menntaskóla í Kaliforníu og þar liggur hluti ástæðunnar að hann vildi ekki taka við starfi á Austurströndinni. Kerr er 48 ára gamall og tekur við starfi Mark Jackson. Golden State vann 51 leik á tímabilinu en datt út fyrir Los Angeles Clippers eftir oddaleik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Warroirs-liðið er ungt og spennandi lið og það verður fróðlegt að sjá hvað Kerr getur gert. Kerr vann fimm titla sem leikmaður, þrjá með Chicago Bulls og tvo með San Antontio Spurs. Hann spilaði þar fyrir tvo af besti þjálfurum allra tíma, Phil Jackson hjá Chicago Bulls og Gregg Popovich hjá San Antonio. Steve Kerr var framkvæmdastjóri Phoenix Suns í þrjú tímabil en hætti í júní 2010. Hann hefur síðan unnið mikið í sjónvarpi en aldrei falið það markmið sitt að komast að sem þjálfari í NBA-deildinni.Steve Kerr og Phil Jackson.Vísir/Getty
NBA Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Sjá meira