Lífið samstarf

Facebookleikur Lífsins – tíu heppnir vinna andlitskrem sem bjargar þreyttri húð

Ellý Ármanns
Nýlega kynnti snyrtivörumerkið Garnier glænýtt krem sem er tilvalið til að bjarga þreyttri húð. Miracle Cream var hannað til að draga úr þreytu í húðinni en með tímanum dregur það úr einkennum öldrunar í húðinni. Kremið er mjög drjúgt og gefur húðinni samstundis góðan raka sem endist allan daginn.

Miracle Skin kremið er hugsað til þess að nota eitt en auk þess að gefa næringu þá inniheldur það örfín litapigment sem springa út og aðlagast að litarhafti hverrar konu þegar það kemst í snertingu við húðina. Hér er á ferðinni krem sem er aðeins fáanlegt í einum lit sem hentar öllum húðlitum.

Krónan gefur tíu heppnum lesendum lífsins Carnier Miracle skin kremið sem Erna Hrund mælir með í meðfylgjandi myndkeiði. Nöfn vinningshafa verða birt á morgun, föstudag, á Facebooksíðu Lífsins.

Kremið, sem jafnar bæði áferð og litarhaft húðarinnar og gefur henni fallegan og léttan ljóma, er fullkomið fyrir íslenskar konur og íslenska veðráttu en það inniheldur SPF 20 og hentar því vel til notkunar í sumar og til að taka með í sólarlandaferðina.

Formúla kremsins inniheldur virk efni sem draga úr fínum línum, dökkum litablettum og svitaholum. Förðunarbloggarinn Erna Hrund sem heldur úti síðunni Reykjavík Fashion Journal á vefsvæðinu trendnet.is er ein þeirra sem hefur verið að skrifa um þessa vöru. 

Hér deilir Erna Hrund með okkur nokkrum ráðum um hvernig má nota kremið og fyrir hvern það er.

Facebooksíða Lífsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.