Brooklyn og San Antonio unnu oddaleikina og komust áfram Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. maí 2014 09:14
San Antonio Spurs, liðið með besta árangurinn í NBA-deildinni í ár, komst áfram í aðra umferð úrslitakeppninnar eftir sigur á Dallas Mavericks, 119-96, í oddaleik í einvígi liðanna á heimavelli sínum í gærkvöldi. Leikstjórnandinn Tony Parker átti stórleik fyrir heimamenn en hann skoraði 32 stig og Argentínumaðurinn ManuGinobli kom sterkur inn af bekknum og skoraði 20 stig. Hjá Dallas var Dirk Nowitzki stigahæstur með 22 stig. Toronto Raptors nýtti sér ekki heimavöllinn í oddaleiknum eins og Spurs og var sent í sumarfrí af Brooklyn Nets sem vann eins stigs sigur, 104-103, í æsispennandi leik í gær.Joe Johnson var traustur að vanda í liði Brooklyn og skoraði 26 stig en hjá Toronto var Kyle Lowry stigahæstur með 28 stig. Brooklyn mætir ríkjandi meisturum Miami Heat í undanúrslitum austurdeildar. Það er einvígi sem Miami-mönnum líst ekkert sérstaklega vel á þar sem Nets vann allar fjórar viðureignir liðanna á tímabilinu. Í hinni undanúrslitaviðureigninni í austrinu mætast Indiana Pacers og Washington Wizards en í vestrinu mætast Oklahoma City og LA Clippers annars vegar og San Antonio Spurs og Portland Trail Blazers hinsvegar. Í spilaranum hér að ofan má sjá brot af frammistöðu Tony Parkers í nótt.
NBA Mest lesið „Þessi Kane er stórhættulegur“ Körfubolti Hefndi fyrir tap Hákonar og stóð uppi sem meistari Sport Gamla Skyttan veitti City þungt högg Enski boltinn Hetjan mætti í vígahug í viðtal: „Algjört kjaftæði“ Enski boltinn Tómas Bent þurfti að yfirgefa völlinn eftir þungt höfuðhögg Fótbolti Ítalinn ungi sótti sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 Formúla 1 Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Stórfurðulegt atvik fyrir leik Chelsea og dómarinn í aðalhlutverki Enski boltinn Segir aðeins eina ástæðu fyrir því að Tudor er enn í starfi Enski boltinn Mörkin úr enska: Sextán ára skrifaði söguna með Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Skrýtin ára yfir Val: „Svo kemur þetta og þá ferðu svolítið að efast“ „Þessi Kane er stórhættulegur“ ÍA 86-115 Tindastóll | Skagfirðingar ekki í vandræðum á Skaganum Stórleikur Elvars dugði ekki til sigurs Ræddu umtalaða sigurkörfu KR: „Þetta er rosalega heimskulegt“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 94-88 | Deildarmeistarar eftir magnaðan viðsnúning Fyrsta tapið á tímabilinu og Almar þarf nú að bíða og vona KR - Keflavík 107-105 | Keflvíkingar gáfu frá sér fimmta sætið „Hefðum unnið þá í framlengingunni í staðinn“ Uppgjörið:Njarðvík - Valur 110-78| Njarðvíkingar að kveikja á sér á hárréttum tíma Uppgjör: Álftanes - ÍR 89-93 | Álftanes að missa af en ÍR á leið í úrslitakeppnina Hákon: Þetta er svo ógeðslega gaman Þór Þ. - Ármann 74-79 | Ármenningar skildu Þórsara eftir í fallsæti Risa leikur í kvöld: „Einn af þeim stærri í sögu Þórs Þorlákshafnar“ Clark fór á kostum í fyrsta landsleiknum „Þetta er ógeðslegt starf“ Tryggvi með hæstu einkunn í flottum sigri Ævintýri Stólanna lauk á spennuleik Uppgjörið: Serbía - Ísland 92-66 | Stelpurnar okkar svæfðar í Serbíu Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Kristrún Ríkey í óvænt flug til Serbíu NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Sjá meira