Lífið

Svona nærð þú langt í jógaiðkun

Sara Snædís Ólafsdóttir
Sara Snædís Ólafsdóttir
Sara Snædís Ólafsdóttir skrifar pistil á vef Í boði náttúrunnar þar sem hún glöggvar lesendur vefsins á því hvernig skuli ná langt í jógaiðkun.

„Í jóga er gott að setja sér lítil markmið og þarf í margar jógastöður mikla þrautseigju og metnað til þess að komast í þær og ná lengra og dýpra . Hugurinn þarf að sjálfsögðu að vera á réttum stað og viljinn og trúin þarf að vera fyrir hendi. Eftirfarandi atriði er vert að hafa í huga ef þú vilt ná markmiði þínu:

Mættu á mottuna: Það þýðir ekkert að mæta endrum og eins og ætlast til þess að einhverjir stórfenglegir hlutir gerist. Mæta þarf reglulega og nauðsynlegt er gefa sér tíma í æfingarnar. Þegar þú mætir á æfingu mættu þá aðeins fyrr og gerðu til dæmis öndunaræfingar, farðu í smá hugleiðslu, leggstu á dýnuna og slakaðu á eða gerðu einhverjar góðar og einfaldar teygjur rétt til þess að hita líkamann. Þú vilt ná að byrja tímann yfirveguð/aður og með hugann alveg við efnið.

Hlustaðu á kennarann eða leiðbeinandann: Það skiptir miklu máli að æfingarnar séu gerðar rétt þar sem hægt er að meiða sig í jóga eins og í öllum öðrum æfingum. Margar stöður eru vand með farnar og nauðsynlegt er að gera þær rétt. Ef stöðurnar eru farnar að vera mjög krefjandi þá skiptir sérstaklega miklu máli að fá góða útskýringu á því hvernig eigi að gera þær til þess að koma í veg fyrir meiðsli. Gott er að tileinka sér það að fá alltaf góða útskýringu á jógastöðum sem verið er að gera í fyrsta skipti svo að þær verði gerðar á  réttan hátt í framtíðinni.

Hér má lesa pistilinn í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.