Sandra María sleit krossband og Katrín er með tvöfalt beinmar Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. apríl 2014 22:18 Sandra María Jessen. Mynd/Vísir
Þór/KA varð fyrir gífurlegu áfalli í dag þegar í ljós kom eftir læknisskoðun að tveir af allra bestu leikmönnum liðsins sem og Pepsi-deildar kvenna í fótbolta eru alvarlega meiddir. Hin bráðefnilega Sandra María Jessen, markadrottning Íslandsmótsins 2012, sleit krossband í leik gegn ÍBV síðastliðinn föstudag og verður því eðlilega ekkert með í sumar.Katrín Ásbjörnsdóttir er með stórt beinmar og verður frá keppni í a.m.k. 6-8 vikur en frá þessu greinir vefsíðan Akureyri.net. „Báðar voru þær á mjög flottri braut og auðvitað eru alvarleg meiðsli alltaf sorgarfréttir fyrir leikmenn og lið. Sem betur fer þá hafa þær báðar breitt bak og eru sterkir karakterar sem stíga uppúr þessu bakslagi með erfiðisvinnu, dugnaði og vilja. Þær verða báðar farnar að skora fyrir Þór/KA og landsliðin okkar áður en við vitum af,“ segir Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA, í samtali við Akureyri.net. Ekki bara er Þór/KA að missa tvo frábæra leikmenn í meiðsli heldur er ekki mikið til í kassanum hjá norðanliðinu til að fylla í skörðin, að sögn Jóhanns Kristins. „Það er ekki mikið svigrúm svona skömmu fyrir mót að bæta við hópinn. Fjárhagslega er það líka nánast ógjörningur nema eitthvað sérstakt komi til,“ segir hann. Sandra María skoraði níu mörk í 14 leikjum í Pepsi-deildinni síðasta sumar og þrjú mörk í fjórum leikjum í Borgunarbikarnum. Þór/KA komst í úrslit bikarsins en tapaði fyrir Breiðabliki. Katrín skoraði 6 mörk í 16 deildarleikjum og þrjú mörk í jafnmörgum leikjum í Borgunarbikarnum.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira