Viðskipti erlent

Fremstu frumkvöðlar Sequoia saman á mynd

Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar
Elon Musk, forstjóri Tesla Motors er einn þeirra sem Sequoia hefur fjármagnað. Hér kynnir hann rafmagnsbílinn Tesla Model S.
Elon Musk, forstjóri Tesla Motors er einn þeirra sem Sequoia hefur fjármagnað. Hér kynnir hann rafmagnsbílinn Tesla Model S. Vísir/AFP
Áhættufjárfestingafyrirtækið stórtæka Sequoia Capital hefur stutt við bakið á ófáu frumkvöðlafyrirtækinu í gegnum árin. Ber þar að nefna Apple, Cisco Systems og Yahoo. Einnig hefur Sequoia fjármagnað byltingarkennd sprotafyrirtæki eins og WhatsApp, Airbnb og Dropbox.

Sequoia hefur til að mynda leitt fjármögnun á íslenska fyrirtækinu Plain Vanilla sem hannaði spurningaleikinn vinsæla, QuizUp. Sequoia auk annarra fjárfestingafyrirtækja fjármögnuðu Plain Vanilla um 22 milljónir bandaríkjadala, eða um 2.5 milljarða króna.

Þrettán frumkvöðlar sem hafa staðið sig í tæknibransanum eftir að Sequoia hefur styrkt þá hittust í verksmiðju Tesla Motors í Kaliforníu fyrir hópmynd í viðskiptatímaritið Forbes



1
. Jerry Yang, meðstofnandi leitarvélarinnar Yahoo. Nú er hann áhættufjárfestir og varaformaður stjórnar Stanford-háskóla. Eignaðist 2.1 milljarða bandaríkjadala eða 238,35 milljarða íslenskra króna sem meðstofnandi Yahoo.



2
. Chad Hurley, Meðstofnandi Youtube. Seldi Youtube til Google árið 2006. Hann hrósar Google fyrir að halda fyrirtækinu á stöðugri vaxatarbraut. Setti á laggirnar myndklippingarsíðuna Mixbit á síðasta ári.



3. Julia Hartz, forseti og meðstofnandi miðasölufyrirtækisins Eventbrite. Hljómsveitir, leikhús og umboðsmenn skemmtikrafta nýta sér hennar tækni til að selja miða á atburði fyrir milljarð dollara eða 113 milljarða króna árlega.



4.Jan Koum, stofnandi og forstjóri WhatsApp. Fjarskipta- og skilaboðafyrirtækið hefur verið keypt af Facebook, en Koum krækir sér í litla 6.8 milljarða bandaríkjadala fyrir þá sölu, eða um 772 milljarða íslenskra króna.



5. Max Levchin, fyrrum tækniformaður netgreiðsluþjónustunnar PayPal. Vinnur sem rágjafi hjá Sequoia. Honum var gefinn skræpóttur, köflóttur jakki í fyrra sem viðurkenning fyrir störf hans í þágu fyrirtækisins.



6. Reid Hoffman, stjórnarformaður LinkedIn. Menntaður í heimspeki hjá Stanford-háskóla og áhættufjárfestir hjá Gryelock. Eigur Hoffman eru taldar vera rúmir 3.6 milljarðar bandaríkjadala, eða 407 milljarðar íslenskra króna.

Frumkvöðlarnir samankomnir á mynd í grein Forbes.Vísir/Skjáskot
7Arash Ferdowsi, meðstofnandi Dropbox. Flosnaði upp úr MIT-háskóla en bjó til sína fyrstu tölvu aðeins 10 ára gamall. Örfáum klukkustundum eftir að hann kynntist Drew Houston, meðstofnanda hans samþykkti hann að koma Dropbox á fót.



8John Chambers, framkvæmdastjóri fjarskiptafyrirtækisins Cisco. Chambers er stundum kallaður járnmaður Sílikondalsins, en hann hefur stýrt Cisco í 19 ár. Hann segir Don Valentine, stofnanda Sequoia hafa ráðlagt sér að kaupa mörg fyrirtæki, en varast að klúðra fyrstu kaupunum. Þau væru varhugaverðust.



9. Brian Chesky, meðstofnandi heimagistingafyrirtækisins Airbnb sem hefur verið að sundra hótelbransanum. Nýjasta fjármögnun hans mun verðleggja Airbnb á 10 milljarða bandaríkjadala, eða um 1133 milljarða króna.



10Elon Musk, forstjóri og stofnandi rafbílafyrirtæksins Tesla Motors og SpaceX, fyrirtæki sem þróar endurnýtanlegar geimflaugar. Musk vann með Sequoia þegar hann stofnaði það sem seinna varð Paypal.



11Adi Tatarko, meðstofnandi Houzz. Sequoia elskar fyrirtæki sem byggja á þörfum stofnenda sinna.Tatarko þurfti betri hugmyndir fyrir innanhúshönnun heimilis síns, en Houzz veitir nú þá þjónustu fyrir milljónir heimila í Bandaríkjunum.



12Kevin Systrom, meðstofnandi Instagram. Hann neitaði starfi hjá Facebook árið 2005. Það var sannarlega viturleg ákvörðun, því árið 2012 græddi hann fúlgur fjár er hann seldi Instagram til Facebook fyrir milljarð bandaríkjadala, eða 113 milljarða króna.



13Fred Luddy, stofnandi ServiceNow. ServiceNow selur hugbúnað til fyrirtækja. Luddy er verkfræðingur sem elskar að byggja hluti. Hann lét af störfum sem forstjóri þar sem hann langaði ekki að vera á fundum daglangt.

Nánar má lesa um úttektina á grein Forbes.


Tengdar fréttir

Verðmæti Plain Vanilla hleypur á milljörðum króna

Verðmæti tölvuleikjafyrirtækisins Plain Vanilla sem gaf út leikinn Quiz Up fyrir iPhone og iPad hleypur núna á milljörðum króna. Hlutafjáraukning er í undirbúningi. Þá er unnið að gerð Quiz Up fyrir Android-stýrikerfið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×