Kobe Bryant spilar ekki fleiri leiki á tímabilinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2014 23:18 Kobe Bryant. Vísir/AP
Los Angeles Lakers tilkynnti það í kvöld að Kobe Bryant muni ekki spila fleiri leiki með liðinu í NBA-deildinni í körfubolta á þessu tímabili en Bryant er að ná sér eftir að hafa meiðst á fæti í desember. Kobe Bryant missti af fyrstu 19 leikjum tímabilsins vegna þess að hann var að ná sér eftir hásinarslit í apríl í fyrra. Kobe náði aðeins að spila sex leiki áður en hann meiddist illa á fæti í leik á móti Memphis. Þetta er átjánda tímabil Kobe Bryant og hann fær fyrir það 30,4 milljónir dollara, 3,4 milljarða íslenskra króna, þrátt fyrir að ná aðeins að spila sex leiki. Lakers borgar þó ekki alla upphæðina því tryggingar munu sjá um hluta hennar. Kobe Bryant var með 13,8 stig og 6,3 stoðsendingar að meðaltali í þessum sex leikjum en hitti aðeins úr 18,8 prósent þriggja stiga skota sinna. Los Angeles Lakers hefur tapað 42 af 64 leikjum sínum á leiktíðinni og er í dag eitt allra slakasta liðið í Vesturdeildinni. Kobe Bryant og félagar vonast nú eftir góðum valrétti í nýliðavalinu í sumar. Kobe Bryant á tvö ár eftir af samningi sínum við Los Angeles Lakers en hann verður 36 ára gamall á næstu leiktíð. Lakers var tilbúið að borga honum 48 milljónir dollara fyrir næstu tvö tímabil eða 5,4 milljarða íslenskra króna.
NBA Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Íslenski boltinn Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Sjá meira