Bætti tólf ára heimsmet Klüft Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. mars 2014 21:15 Kendell Williams. Vísir/Getty
Kendell Williams, átján ára fjölþrautarkona frá Bandaríkjunum, stórbætti um helgina heimsmet unglinga í fimmtarþraut innanhúss. Gamla metið var í eigu hinnar sænsku Carolinu Klüft, einnar sigursælustu fjölþrautarkonu síðari ára. Klüft hafði sett metið á EM innanhúss í Vínarborg árið 2002. Williams bætti met Klüft um 100 stig þegar hún fékk 4635 stig á NCAA-háskólamóti í Albuquerque á laugardag. Williams keppir fyrir University of Georgia. Hún átti sannkallaða draumaþraut og bætti sig í öllum fimm greinunum. Hún hljóp 60 m grindahlaup á 8,21 sekúndu, stökk 1,88 m í hástökki, kastaði kúlu 12,05 m, stökk 6,32 m í langstökki og hljóp 800 m á 2:17,31 mínútum. Williams bætti sig um sex sentímetra í hástökki, rúman metra í kúluvarpi og tæpar níu sekúndur í 800 m hlaupinu. Þess má geta að Mafissatou Thiam frá Belgíu bætti met Klüft í fyrra en féll á lyfjaprófi. Met hennar var því aldrei staðfest.Helga Margrét Þorsteinsdóttir á Íslandsmet 18-19 ára í fimmtarþraut en það er 4205 stig og var sett í Stokkhólmi fyrir rúmum fjórum árum síðan.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira