Viðskipti erlent

Hundur seldist á 226 milljónir

Finnur Thorlacius skrifar
Hundur af tíbesku Mastiff kyni.
Hundur af tíbesku Mastiff kyni.
Tíbeskur Mastiff hvolpur seldist í gær á svo háu verði í Kína í gær að líklega hefur aldrei verið greitt hærra verð fyrir hund í heiminum. Verðið sem nýr eigandi hans greiddi var 12 milljón yuan, eða 226 milljónir króna.

Hundurinn seldist á uppboði sjaldgæfra hunda í Kína og annar Canine hundur seldist á helming þessarar upphæðar. Seljandi þessa dýra hunds segir að hundar af þessu kyni séu með „ljónablóð“ og eiga ættir þeirra því að tengjast ljónum.

Hundar þessarar gerðar eru orðnir tákn fyrir vellauðuga eigendur þeirra í Kína. Þeir eru engin smásmíði, eru 80 cm háir og vega um 90 kíló. Þeir eru að sjálfsögðu sjaldgæfir, eins og kínversku pöndurnar og því er verð þeirra ávallt hátt, þó þetta verð hafa líklega sprengt skalann.

Árið 2011 seldist samskonar hundur fyrir 188 milljónir króna. Nýi eigandi hundsins er stór fasteignaeigandi og hyggst hann ala fleiri slíka undan þessum rakka.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×