Flughált víða um land Kristjana Arnarsdóttir skrifar 1. janúar 2014 17:15 mynd/haraldur
Vegagerðin varar við flughálku víða um land. Ófært er á Lyngdalsheiði og er óveður á Kjalarnesi, Mosfellsheiði og víðar í uppsveitum Suðurlands. Hvasst verður af NA í allan dag og stormur víða á fjallvegum. Hviður um 30-35 m/s á sunnanverðu Snæfellsnesi og í Reykhólasveit og eins upp úr miðjum degi undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi. Vægur bloti víðast áfram í byggð og við þessar aðstæður verða sumir vegir þar sem klaki er frekar varsamir, flughálir í þetta miklum vindi. Sérstaklega á þetta við norðan- og austanlands, en einnig á útvegum sunnan- og vestanlands. Á fjallvegum er kaldara og þar hríðarmugga og skafrenningur, einkum frá Öxnadalsheiði austur um í Oddsskarð. Hálka er víðast hvar á Suðurlandi, á Hellisheiði og hálkublettir í Þrengslum. Þá er flughált á Krýsuvíkurvegi og á nokkrum vegum í kringum Hvolsvöll. Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á vegum, flughált er í vestanverðum Hrútafirði og hálka og skafrenningur á Holtavörðuheiði. Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum og óveður á Steingrímsfrjarðarheiði og á Þröskuldum. Ófært er frá Bjarnarfirði og norður í Djúpavík á Ströndum. Þá er hálka og éljagangur á flestum vegum á Norðurlandi. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Öxnadalsheiði og Víkurskarði en einnig er flughált í kringum Húsavík. Ófært er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og ekki verður opnað í dag. Á Austurlandi er ófært á Vopnafjarðarheiði Fjarðarheið og Vatnsskarði eystra. Þæfingsfærð og skafrenningur er í Oddskarði. Hálka og snjókoma er á Fagradal. Flughálka er í kringum Vopnafjörð og á öllum leiðum í kringum Egilsstaði. Hálka eða hálkublettir eru svo á öðrum leiðum.
Veður Mest lesið Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Erlent „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Innlent Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? Innlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent Fleiri fréttir „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Sjá meira