Lífið

Vertu besta útgáfan af sjálfri þér

Marín Manda skrifar
Helga Marín Bergsteinsdóttir.
Helga Marín Bergsteinsdóttir.
Sex fyrirlesarar halda námskeiðið Orka, hreysti og vellíðan fyrir konuna sem vill lifa lífinu til fullnustu.

Ég hef unnið með konum frá öllum hornum heimsins og mér finnst áberandi hve íslenskar konur eru öflugri en flestar þær sem ég hef hitt annars staðar. Þær gera sér kannski ekki grein fyrir því sjálfar en eru með ótrúlegan kraft sem þær ná stundum ekki að virkja að fullu,“ segir Helga Marín Bergsteinsdóttir, sem er menntuð sem íþróttafræðingur og markþjálfi.

Helga Marín býr í Dubai og rekur sitt eigið fyrirtæki, Health, Mind and Body. Í þessari heimsókn sinni til Íslands ákvað hún ásamt fimm öðrum reynsluríkum konum að halda námskeið til að efla konuna ásamt því að láta gott af sér leiða. Námskeiðið nefnist Orka, hreysti og vellíðan og er haldið til styrktar Ljósinu.

„Ég lærði fyrir nokkrum árum að tengjast innsæi mínu en þá koma ótrúlegir hlutir upp í hendurnar á manni. Á yngri árum var ég með bæði brotna sjálfsmynd og lélegt sjálfstraust en með réttum verkfærum hefur það leitt mig í ýmis verkefni sem mig hafði aldrei grunað. Það er sorglegt hve mikil verðmæti fara til spillis þegar sjálfstraustið vantar,“ segir Helga Marín og heldur áfram: „Svörin gætu legið nær þér en þú heldur því flestar okkar eiga sér drauma en fæstar okkar láta þá rætast.“ Aðrir fyrirlesarar sjálfseflingarnámskeiðsins eru þær Guðrún Bergmann, Ingrid Kuhlman, Lukka Pálsdóttir, Bjargey Aðalsteinsdóttir og Edda Björgvins.

Námskeiðið fer fram á Happi laugardaginn 16. nóvember frá kl. 10-16 en hægt að kaupa miða á midi.is

Nánari upplýsingar er að finna á healthmindbody.net






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.