Lífið

Líkamsskrúbbur er tilvalin tækifærisgjöf

Dagný Gísla. skrifar
Heimatilbúinn líkamsskrúbbur.
Heimatilbúinn líkamsskrúbbur.
Búðu til þína eigin náttúrulegu blöndu og skrúbbaðu húðina silkimjúka.

Á þessum tíma árs kljást margir við húðvandamál sem eru ekki sjáanleg á sumrin. Þá er um að gera að dekra við þetta stóra líffæri og búa til náttúrulegan skrúbb, sem er án allra aukefna og ilmar eins og jólin. Skrúbbinn er best að nota á þurra húð rétt fyrir sturtu, hann hreinsar burt dauðar húðfrumur og húðin verður silkimjúk.

Það sem til þarf:

- Ólífuolía

- Hrásykur

- Kanill

- Krukka

- Snæri

1. Blandaðu ólífuolíu og hrásykri saman í skál í jöfnum hlutföllum.

2. Bættu við 2-3 teskeiðum af kanil og hrærðu vel.

3. Helltu blöndunni í krukku sem lokast vel.

4. Skreyttu krukkuna með snæri til skrauts.

5. Hristu krukkuna vel fyrir notkun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.