Skoðun

Verkin sýna merkin, Katrín

Kristinn H. Gunnarsson skrifar
Síðasta ríkisstjórn glímdi við mikla erfiðleika en hún fékk líka betra tækifæri til þess en nokkur önnur ríkisstjórn að umbylta valdakerfi fámennrar yfirstéttar og að jafna byrðarnar á þegna landsins með sanngjörnum og réttlátum hætti. Vinstri grænir komust í lykilaðstöðu þar sem ráðherrar flokksins fóru með sjávarútvegsmál og fjármálaráðuneytið. Þótt margt hafi ágætlega verið gert skorti mikið á stefnufestu forystumanna flokksins. Formaður Vinstri grænna kveinkar sér undan gagnrýni, en verkin sýna merkin.

Vinstri grænir og Samfylkingin fengu skýrt umboð í þingkosningunum 2009. Stefna flokkanna í sjávarútvegsmálum var samhljóða í öllum meginatriðum. Þeir ætluðu að innkalla veiðiheimildirnar og endurúthluta þeim eftir almennum reglum þar sem jafnræðis væri gætt.

Kjósendur studdu þessi áform heilshugar þá og ítrekuðu síðar með því að samþykkja í þjóðaratkvæðagreiðslu að leyfi til þess að nýta fiskimiðin skyldu verða veitt á jafnræðisgrundvelli til hóflegs tíma og gegn fullu gjaldi.

Siðfræðistofnun Háskóla Íslands og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar vöruðu við því í erindum til Alþingis að festa kvótakerfið með óbreyttu úthlutunarkerfi enn frekar í sessi. Bentu forsvarsmenn stofnananna á að kerfi framseljanlegra fiskveiðiheimilda hefðu það gjarnan í för með sér að þær söfnuðust á fárra hendur og að með þeim verðmætu forréttindum sem felast í umráðarétti fiskstofnanna væru lagðar línur varðandi auð, völd, áhrif og ítök einstaklinga og þjóðfélagshópa.

Forysta Vinstri grænna komst í valdastólana og hafði allt með sér. Það var hægara sagt en gert að láta sér mistakast. En það gerðist samt. Katrín Jakobsdóttir og félagar hennar afneituðu eigin stefnu og vísuðu á bug úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Forystan sló skjaldborg um sama spillta úthlutunarkerfið. Kjarkinn brast til þess að sækja í metgróðann í sjávarútveginum fjárhæðirnar sem þurfti til að verja velferðarkerfið alvarlegum áföllum.

Hækkun veiðigjaldsins á lokasprettinum eru spor í rétta átt en aðeins smámunir af metgróðanum frá 2008. Réttlát tekjuskipting er enn víðs fjarri. Það er einsdæmi að róttækur vinstri flokkur sem tekst á við valdaöfl þjóðfélagsins samsami sig þeim þegar á reynir og gefi almenningi langt nef. Formaður Vinstri grænna þarf að gefa skýringar á því.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×