Skoðun

Leynibréfið – eða þannig sko

Sighvatur Björgvinsson skrifar
Leynt hefur farið bréf sem Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kom á framfæri við Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra. Í bréfinu segir svo í íslenskri þýðingu: „Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fer þess hér með á leit við íslensku ríkisstjórnina að samningaviðræður þær, sem legið hafa niðri um nokkurt skeið milli ríkisstjórnar lýðveldisins Íslands og Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, verði hafnar að nýju.

Framkvæmdastjórnin tekur fram, að það er þó ekki vilji Framkvæmdastjórnarinnar að lýðveldið Ísland tengist Evrópusambandinu nánar en þegar er orðið enda er það stefna Framkvæmdastjórnarinnar að viðræðurnar leiði ekki til þess að Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu. Hvað er að tarna? Er Baroso endanlega orðinn vitlaus eða er verið að gera grín að hinni frjálsu og yfirtaks sjálfstæðu íslensku þjóð?

Þjóðsaga?

Getur það verið að það sé þjóðsaga að slíkt bréf hafi borist? En skyldu Sigmundur Davíð og Bjarni – já og Davíð hinn ekki hafa orðið skrýtnir í framan ef svo væri? Nú eða Þorsteinn Pálsson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir? Ef ESB vildi halda viðræðunum áfram þó tekið sé fram að enginn sé vilji til þess á þeim bænum að viðræðunum ljúki með jákvæðri afgreiðslu heldur þvert á móti! Skyldi finnast í heimssögunni dæmi um slíkar bréfasendingar í diplómatíunni? Nei, ekki svo vitað sé.

Samt vilja heiðarlegir og skynsamir sjálfstæðismenn að sambærilegt bréf berist frá ríkisstjórn Íslands með ósk um áframhaldandi viðræður jafnvel þó ekki bara ríkisstjórnin sjálf heldur báðir stjórnarflokkarnir séu alfarið á móti því að viðræðurnar leiði til þess að Ísland gerist aðili að ESB! Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa ekki bara báðir þá afdráttarlausu stefnu heldur kröfðust þess meira að segja; a.m.k. landsfundur Sjálfstæðisflokksins; að Evrópustofu yrði lokað og starfsmönnum hent úr landi. Andúðin er slík, að gamalkunna Rússahatrið kemst ekki með tærnar þar sem ESB-andúðin er með hælana.

Þetta studduð þið!

Mér dettur ekki í hug að efa, að margir góðir Sjálfstæðismenn; þ.á.m. forystumenn í íslensku atvinnulífi; vildu og vilja í einlægni ljúka samningaviðræðum við ESB í þeirri von að þær leiði til jákvæðrar niðurstöðu til heilla og hagsbóta fyrir íslensku þjóðina. Þeir greiddu hins vegar atkvæði þannig í síðustu kosningum, að slíkt getur nú ekki orðið. Það gerðu þeir vitandi vits. Þeim var nær! Halda þeir virkilega að Davíð muni leyfa að ósk um áframhaldandi viðræður berist frá núverandi stjórnvöldum. Nei, vinir góðir. Slíkt erindi berst ekki á þessu kjörtímabili. Og mun ekki berast á því næsta nema þið kjósið öðruvísi þá en þið gerðuð síðast. Með atkvæði ykkar öxluðuð þið ábyrgð á vegferðinni. Þið vissuð vel hvað þið voruð þá að gera – en gerðuð það samt! Ykkur var nær!




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×