Ótrúleg saga Bling glæpahringsins Sara McMahon skrifar 21. ágúst 2013 22:00 Söguþráður kvikmyndarinnar The Bling Ring er byggður á raunverulegum atburðum.
Kvikmyndin The Bling Ring verður frumsýnd í kvikmyndahúsum hér á landi á föstudag. Myndin er byggð á raunverulegum atburðum og segir frá hópi táninga sem brýst inn á heimili frægra einstaklinga. Söguþráður myndarinnar er á þann veg að táningurinn Marc Hall hefur nám í nýjum skóla í Kaliforníu. Hann kynnist fljótlega Rebeccu Ahn, sem er afar upptekin af lífi fræga og ríka fólksins og er leikkonan Lindsay Lohan í sérstöku dálæti hjá henni. Eitt kvöld tekur parið upp á því að brjótast inn á heimili hótelerfingjans Paris Hilton og ræna ýmsum fatnaði og skartgripum. Tvíeykinu þykir ránið svo vel lukkað að það heldur innbrotunum áfram og nú í slagtogi við fleiri vini sína: Nicki Moore, Chloe Tayner og Sam Moore.Sagan minnti á bíómynd Leikstjóri myndarinnar er Sofia Coppola, sem hefur áður leikstýrt myndum á borð við Somewhere, Lost in Translation og The Virgin Suicides. Coppola skrifar jafnframt handrit myndarinnar og bróðir hennar, Roman Coppola, framleiðir hana. Hvatinn að gerð myndarinnar var grein sem birtist í tímaritinu Vanity Fair og fjallaði um ránin. „Þegar ég las greinina fannst mér sagan hljóma nánast eins og söguþráður kvikmyndar. Ég kom mér í samband við blaðamanninn og því meira sem ég fékk að vita, því áhugaverðara fannst mér efnið. Mér fannst sagan segja svo mikið um samtíma okkar og samtímamenningu,“ sagði Coppola. Tökur á The Bling Ring hófust í mars í fyrra og var heimili Hilton á meðal tökustaða. Með helstu hlutverk myndarinnar fara Katie Chang, Israel Broussard, Emma Watson, Claire Julien, Taissa Farmiga og Leslie Mann. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes nú í ár og hlaut fínar viðtökur. Watson, Broussard og Chang þykja þá sýna frábæran leik. The Bling Ring hlýtur sextíu prósent í einkunn á vefsíðunni Rottentomatoes og 66 prósent á vefsíðunni Metacritic.Með eigin raunveruleikaþátt The Bling Ring er byggð á sögu hóps ungs fólks sem gekk undir nöfnunum Hollywood Hills Burglar Bunch og The Burglar Bunch í fjölmiðlum. Hópurinn samanstóð aðallega af sjö táningum sem brutust inn á heimili ríkra og frægra á tímabilinu frá október 2008 og fram í ágúst 2009. Hópurinn rændi skartgripum, fatnaði og peningum að andvirði 360 milljóna króna. Athygli vakti að táningarnir voru flestir vel efnaðir. Hópurinn braust meðal annars ítrekað inn á heimili Paris Hilton, en einnig inn til leikkvennanna Megan Fox, Rachel Bilson og Lindsay Lohan, raunveruleikastjörnunnar Audrinu Patridge og á heimili Orlandos Bloom og Miröndu Kerr. Forsprakki hópsins var Rachel Lee, sem skipulagði flest innbrotin, en aðrir meðlimir hópsins voru Nick Prugo, Diana Tamayo og systurnar Alexis Neiers, Gabrielle Neiers og Tess Taylor. Systurnar fengu í kjölfarið eigin raunveruleikaþátt sem sýndur var á sjónvarpsstöðinni E!. Táningarnir fengu flestir tveggja ára fangelsisdóm fyrir innbrotin og hafa flestir setið þann dóm af sér. Leikkonan Emma Watson leikur Nicki í The Bling Ring, en persónan er byggð á Alexis Neiers. Watson lét þau orð eitt sinn falla að hún hefði átt í stökustu vandræðum með að samsama sig persónu sinni. „Sumt sem hún segir er svo brjálað og fjarstæðukennt að mér þótti það hrein áskorun að fá það til að hljóma sannfærandi,“ sagði leikkonan. Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá systurnar ræða um þátt sinn í innbrotunum.
Mest lesið Sex ára þegar hann var fyrst frelsissviptur Lífið Ungir Framsóknarmenn safna fyrir neyðarsjóð Ragnars Þórs Lífið Segir gott að elska Ara Lífið Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið Elísabet fær uppreist æru Gagnrýni Eldheitt hjá Þorvaldi Þórðar, Magneu og Jónsa í Hörpu Lífið Skuggavaldið: Popúlískir samsærisórar nú stjórnarhættir stórveldis Lífið „Ég hef gert mig þannig tilbúna fyrir þetta að ég eigi titilinn skilið“ Lífið Svona varð fimm hundruð milljóna Volcano Express til Lífið Ómótstæðilegir pistasíumolar undir áhrifum frá Dúbaí Lífið Fleiri fréttir Anora sigurvegari á Óskarnum Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Snerting, Ljósbrot og Ljósvíkingar bítast um Edduna Bezos bolar Broccoli burt frá Bond Næsti Dumbledore fundinn Bauð Bandaríkin velkomin í hóp konungsríkja Jóhannes Haukur fer mikinn í Marvel stiklu Svaraði kallinu frá Ben Stiller Ljósbrot hlaut aðalverðlaun í Gautaborg Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Sjá meira
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein