Lífið

Hrifinn af barnabarni Elvis Presley

Robert Pattinson og  Riley Keough.
Robert Pattinson og Riley Keough. Nordicphotos/getty
Robert Pattinson mun hafa fundið ástina að nýju með leikkonunni Riley Keough, dóttur Lisu Marie Presley. Þau hafa verið að stinga saman nefjum í nokkrar vikur, en Pattinson og Kristen Stewart slitu sambandi sínu í maí.

„Hún er fyrsta stúlkan sem hann fellur fyrir frá sambandsslitunum við Kristen og þeim þykir gaman að eyða tíma saman,“ hafði tímaritið Us Weekly eftir innanbúðarmanni. Keough, sem átti áður í sambandi við leikarann Alex Pettyfer, lék ásamt Stewart í kvikmyndinni Runaways frá árinu 2010.

Pattinson og Stewart enduðu fjögurra ára samband sitt í maí. Stewart hélt framhjá Pattinson í fyrrasumar og setti það mark sitt á sambandið.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×