Enginn betri í undanúrslitum bikarsins en Framarar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2013 07:30
Framarar tryggðu sér sæti í bikarúrslitum í átjánda sinn í sögu félagsins þegar liðið vann 2-1 sigur á Breiðabliki á Laugardalsvellinum á sunnudaginn. Mörk Kristins Inga Halldórssonar og Hólmbert Friðjónssonar í fyrri hálfleik nægðu til að koma Safamýrapiltum í úrslitaleikinn en Árni Vilhjálmsson minnkaði muninn fyrir Blika í lokin. Fram jafnaði með þessu met ÍA með því að komast í sinn átjánda bikarúrslitaleik en það er ekkert félag sem státar af betra sigurhlutfalli í undanúrslitunum en einmitt Framarar. Framliðið hefur unnið 18 af 24 undanúrslitaleikjum sínum í bikarnum sem þýðir 75 prósent sigurhlutfall og aðeins betra sigurhlutfall en hjá Skagamönnum (72 prósent, 18 af 25). Framarar hafa ennfremur unnið 15 af 16 síðustu undanúrslitaleikjum sínum í bikarnum en eina tapið í undanúrslitum frá árinu 1973 kom á móti KR árið 2010. Það er allt aðra sögu að segja af Blikum sem eru neðstir á listanum yfir besta sigurhlutfall í undanúrslitum af þeim liðum sem hafa spilað tíu undanúrslitaleiki eða fleiri. Breiðablik hefur nú tapað 9 af 11 undanúrslitaleikjum sínum í bikarkeppni karla. Sigurhlutfall félaga í undanúrslitum bikarsins(Lágmark 10 leikir)75 prósent - Fram (18/24)72 prósent - ÍA (18/25)63 prósent - Valur (12/19)62 prósent - ÍBV (10/16)61 prósent - KR (17/28)43 prósent - Keflavík (9/21)38 prósent - FH (5/13)18 prósent - Breiðablik (2/11)
Íslenski boltinn Mest lesið Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni Enski boltinn Dagný gleymd eða afskrifuð?: Hefur ekkert heyrt í landsliðsþjálfaranum Fótbolti „Gætu gert hrikalega góða hluti með íslenska landsliðið“ Fótbolti Laumaði hauskúpu afa síns inn á úrslitaleikinn Fótbolti Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Handbolti Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Fótbolti Umboðsmaðurinn sérstaki sem kom með fyrstu Kananna til landsins Körfubolti Slot mætti með Salah brandara á blaðamannafundinn Sport „Við erum brothættir“ Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikur á Anfield, Bónus deild kvenna og margt fleira Sport Fleiri fréttir Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Dagný gleymd eða afskrifuð?: Hefur ekkert heyrt í landsliðsþjálfaranum „Gætu gert hrikalega góða hluti með íslenska landsliðið“ Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni Laumaði hauskúpu afa síns inn á úrslitaleikinn „Við erum brothættir“ „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Atlético skoraði sex Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Skytturnar léku á als oddi Eiður Aron áfram á Ísafirði Hareide þarf að leggjast undir hnífinn Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Andri Rúnar í Stjörnuna Hvorki Arnar né Freyr heyrt frá KSÍ Kæra framleiðendur Lionel Messi drykkjarins fyrir stuld Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Sjá meira