Skoðun

"Maybe I should have“

Andrea Ólafsdóttir og Þorvaldur Geirsson skrifar
Ætli fólk geri sér almennilega grein fyrir því hversu mikið er í húfi í kosningum á laugardag? Saman verðum við að standa vörð hvert um annað, réttlætið og lýðræðið.



Við kjósum ekki „af því bara“. Við kjósum vegna þess að okkur hefur verið gefið vald. Við verðum að nota það vald. Í lýðræðissamfélagi berum við öll ábyrgð. Tækifærið til breytinga er núna. Við verðum að velja okkur fólk á þing til að verja grunnstoðir samfélagsins og tryggja afkomu þeirra sem hafa orðið undir á síðustu árum. Við viljum flest öll hér á Íslandi búa land svipað hinum Norðurlöndunum – stefnum þangað saman. Bætum kjör almennings saman, leiðréttum lán heimilanna saman, tökum heildarendurskoðun á lífeyriskerfinu saman, fáum nýja stjórnarskrá saman, verjum velferðarkerfið saman, tryggjum auðlindir í þjóðareigu saman – tökum höndum saman um breytingar til hins betra. Það er ekki gott að þurfa að sitja með sárt ennið að ári og þurfa að hugsa með sér „maybe I should have“. Við verðum að þora!

Sigurvegari kosninganna

Mörg okkar í Dögun hafa barist fyrir heimilin í mörg ár, m.a. á vettvangi Hagsmunasamtaka heimilanna. Við hljótum því að vera glöð yfir að áherslur okkar eru að vinna þessar kosningar.



Nú eru allflestir hagfræðingar farnir að viðurkenna að þær leiðir sem við leggjum til séu raunhæfar og jafnvel mjög æskilegar. Sumir töluðu um barbabrellur og reyndu að gera lítið úr óréttlætinu – en hafa nú þurft að éta það ofan í sig. Við í Dögun höfum bent á margar mismunandi leiðir að sama marki – en við þurfum að standa með sjálfum okkur og heimilunum til þess að leiðréttingar lána og afnám verðtryggingar nái fram að ganga og þær þurfa að lenda á fjármálakerfinu, því það ber ábyrgðina á tjóninu. Dögun er með best útfærðu stefnuna þegar kemur að því hvað tekur síðan við.

Dögun eina nýja aflið á uppleið



Á síðustu dögum hefur komið í ljós að Dögun er eina nýja aflið sem er að auka við sig fylgi. Við hvetjum því alla til að kynna sér málefnin á XT.is og sameinast um eitt nýtt afl sem setur heimilin í 1. sæti og er hvað líklegast til að brjóta 5% múrinn. Tryggjum talsmenn heimilanna, réttlætis og lýðræðis inn á þing!




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×