Skoðun

Við eigum betra skilið en sirkus Geira ósmart

Sigurður Ragnarsson skrifar
Síðustu ár hafa verið súrrealísk. Hrunið hér varð algert. „Góðærið“ var keyrt áfram af botnlausri græðgi, skammtímasýn og hannað af viðskipta- og fjárglæfratöframönnum sem margir böðuðu sig í frægðarsól. Þar kom þó að því að frægðarsólin brenndi og dagsljósið birti hroðalega mynd siðleysis, hirðuleysis og egóisma. Heimilin í landinu og almenningur ásamt flestum fyrirtækjum líða fyrir þetta. Nú er ljóst hvers konar sirkus var í gangi. Það var sirkus Geira ósmart.

Málið er einfalt. Við eigum betra skilið. Við sem búum hér viljum byggja upp sanngjarnt og gagnsætt samfélag þar sem öllum getur liðið vel. Fráfarandi ríkisstjórn lofar fögru í dag en veit samt að hún féll á prófinu. Verkin segja allt sem segja þarf. Forgangsmál stjórnarinnar var að senda björgunarleiðangur til að bjarga bankakerfinu. Auðvitað þurfum við öflugt bankakerfi en það eru fleiri stoðir sem þarf að sinna.

Heilbrigðiskerfið, menntakerfið, löggæslan o.s.frv. var allt sett skör neðar. Það er í lagi að setja mörg hundruð milljarða í bankakerfið en að hjálpa bágstöddum, eignalausum, sjúklingum o.fl. skiptir greinilega minna máli. Það sem svíður svo einna verst er að búið er að selja þrotabúin til hrægammasjóða. Við erum bara tölur í excel-skjali þeirra miklu spekinga sem reyna að mjólka íslenskt samfélag. Við eigum skilið stjórn sem tekur á þessu og vill vinna fyrir fólkið og fyrirtækin í landinu. Stjórnarflokkarnir féllu á prófinu. Þeir fengu sinn tíma og nýttu hann illa, þó bankakerfið og hrægammasjóðir þakki þeim vel og innilega fyrir.

Heiðarleg vinnubrögð

Við verðum að skoða vel hvaða kostir eru í boði og fara fram á heiðarleg og sönn vinnubrögð hjá þeim sem bjóða sig fram til forystu fyrir okkur. Við eigum skilið frábært samfélag. Samfélag sem líður ekki ójöfnuð, líður ekki að ákveðnir hópar, stofnanir, fyrirtæki eða sjóðir geti blómstrað á kostnað annarra og setið hjá í aðgerðarleysi og láti sig vandamálin ekki varða. Við þurfum meiri samstöðu. Nú þurfa allir einstaklingar og hópar, hvort heldur þeir eru ríkir eða fátækir, fyrirtæki, fjármálastofnanir, samtök, lífeyrissjóðir og allir aðrir að taka höndum saman. Það er mál allra að byggja hér upp sanngjarnt og siðferðilegt samfélag.

Við eigum skilið forystu sem getur komið atvinnulífinu aftur í gang og hefur raunverulegan kjark til að iðka réttlæti. Við eigum skilið forystu sem hefur kraft og þor til að hjálpa þeim sem eru í vanda staddir og leiðrétta þá eignaupptöku sem hefur átt sér stað. Við eigum skilið forystu sem vill byggja upp og þjóna heilbrigðu samfélagi og hefur í heiðri hina gullnu reglu: „Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.“




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×