Aníta getur hlaupið hraðar í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2013 06:00 Aníta Hinriksdóttir keyrði upp hraðann í byrjun. Mynd/NordicPhotos/Getty
Aníta Hinriksdóttir tryggði sér í gær sæti í undanúrslitum í 800 metra hlaupi kvenna á EM innanhúss í Gautaborg þegar hún varð níunda í undanrásum. Aníta hljóp á 2:04.72 mínútum en Íslandsmet hennar frá því í febrúar er 2:03.27 mínútur. Aníta kom þriðja í mark í sínum riðli en þrjár efstu komust áfram. Aníta tók forystuna strax í byrjun og var fyrst í sínum riðli eftir bæði 200 og 400 metra. Hún gaf eftir í lokin en hélt 3. sætinu. „Ég held að hún hafi hlaupið fyrstu 400 metrana svona hratt af því að spennustigið var svo hátt. Núna er hún búin að taka það svolítið úr sér, ég veit að hún hleypur jafnara hlaup í dag. Hún sér eftir þetta hlaup og ég líka að hún getur hlaupið hraðar í dag ef hún nær að útfæra hlaupið öðruvísi," sagði Gunnar Páll Jóakimsson, þjálfari Anítu. „Spennustigið var mjög hátt og hún hleypur fyrsta hringinn hraðar en við plönuðum. Ég vissi alveg að það gæti gerst. Það var því draumur að komast áfram og ég efast ekki um það að hún hlaupi mjög vel á morgun (í dag)," segir Gunnar. Sex efstu komast í úrslit en undanúrslitahlaupið fer fram klukkan 16.38 í dag. „Hún verður að hlaupa hraðar en í gær og það er það sem hún stefnir á. Við getum samt ekkert verið ósátt því þetta er mjög gott hjá henni á fyrsta stórmóti fullorðinna," sagði Gunnar.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira