Graníthöllin býður upp á vandaða granítlegsteina í miklu úrvali 30. janúar 2013 06:00 Heiðar hefur margra ára reynslu af vinnu við legsteina og meðhöndlun á graníti. Mynd/GVA
Graníthöllin býður upp á fjölbreytt úrval fallegra legsteina. „Markmið okkar er að vera með fallegustu legsteina landsins og leggjum við okkur fram við að bjóða vandaða vöru á viðráðanlegu verði," segir eigandinn, Heiðar Steinsson, sem hefur margra ára reynslu af vinnu við legsteina og meðhöndlun á graníti. „Við bjóðum upp á gríðarlega mikið úrval og erum með yfir hundrað gerðir og liti í versluninni auk þess sem hægt er að sérpanta steina ef þess er óskað. Við erum bæði með einfalda og klassíska steina og einnig steina með miklum útskurði. Það ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi." Steinarnir eru allir úr hágæða granítsteini sem Heiðar segir þola íslenska veðráttu mjög vel. Hann segir að í vöxt hafi færst að fólk vilji hafa alls kyns fylgihluti við legsteininn eins og luktir og blómavasa. Graníthöllin býður upp á gömlu koparluktirnar sem hafa notið vinsælda undanfarna áratugi en einnig granítluktir og vasa í stíl við legsteininn sem er nýjung hér á landi. „Fólki hefur líkað þessi nýjung vel, enda eru þetta stílhreinir og fallegir hlutir. Kosturinn er að luktirnar eru afar sterkbyggðar og það sér ekkert á þeim með árunum ólíkt koparnum," segir Heiðar. Þá tekur Graníthöllin að sér viðgerðir og viðhald á legsteinum. „Það borgar sig að gera við hættulega legsteina sem eru við það að falla á hliðina en það hafa orðið mörg slys víðs vegar um heiminn af þeirra völdum," segir Heiðar. „Ef börn príla utan í slíkum steinum og þeir falla á hliðina getur það haft slæmar afleiðingar. Við viljum koma í veg fyrir slíkt og bendum fólki á að hafa samband ef legsteinar eru farnir að halla en við lögum það fyrir sanngjarnt verð. Þá bjóðum við upp á þá þjónustu að bæta við nöfnum á legsteina, hreinsa og endurmála stafi." Graníthöllin er til húsa að Bæjarhrauni 26 í Hafnarfirði, á móti Fjarðarkaupum, en fyrirtækið þjónustar allt landið. „Við erum í fallegu húsnæði. Þar er gott aðgengi og við tökum vel á móti öllum," segir Heiðar. Nánari upplýsingar er að finna á granithollin.is.
Mest lesið Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Viðskipti innlent Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Viðskipti innlent Verð á innlendri dagvöru hækkar hraðar en verð á erlendri Neytendur Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Viðskipti innlent Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Viðskipti innlent Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum Viðskipti erlent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Viðskipti innlent Síðasti dropinn á sögulegri stöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira