Úrgangur er gullnáma framtíðar 19. janúar 2013 10:00 Ragna Ingibjörg Halldórsdóttir með hina nýju endurvinnslupoka Sorpu í baksýn. Pokarnir eru tilvaldir til flokkunar á pappí og pappa heima við og fást afhentir á endurvinnslustöðvum Sorpu í byrjun febrúar. Mynd/Valli
Hér er strax hafið mikið pappírsflóð og við í Sorpu erum vel undirbúin að taka á móti því öllu,“ upplýsir Ragna Ingibjörg Halldórsdóttir, deildarstjóri umhverfis- og fræðsludeildar Sorpu. Ragna segir að þrátt fyrir tunnuvæðingu sveitarfélaganna hafi það komið stjórnendum skemmtilega á óvart að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa ekki minnkað við sig að skila endurvinnanlegum pappír og pappa í grenndarstöðvar Sorpu. „Með átaki sveitarfélaga um flokkun og endurvinnslu pappírs sýnir sig að þau eru að ná inn pappír sem áður fór í tunnuna með heimilissorpinu. Enda er einfalt fyrir íbúana að hefja þetta verkefni, jafnvel þótt það kosti sérferð í sorpgeymsluna. Flestir hafa gott af hreyfingu og upplagt að líta á það sem líkamsrækt,“ segir Ragna kankvís, „og allur pappírinn fer að sjálfsögðu í endurvinnslu!“ Ragna segir flesta vel kunnuga Sorpu enda reki fyrirtækið sex endurvinnslustöðvar og áttatíu grenndargáma víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu. „Sorpa sér ekki um sorphirðu sem slíka heldur eingöngu móttöku úrgangs. Í móttökustöð okkar í Gufunesi koma sorphirðubílar af öllu höfuðborgarsvæðinu og þar tökum við á móti blönduðum og flokkuðum úrgangi sem við komum í réttan farveg. Blandaður, óendurvinnanlegur úrgangur er urðaður í Álfsnesi en fer fyrst í hakkavél og þaðan á segulfæribönd sem nær úr honum sextíu prósentum alls málms sem einnig fer í endurvinnslu,“ útskýrir Ragna um dagleg kraftaverk Sorpu í þágu náttúrunnar. „Allur úrgangur er hráefni og í sorpi felast heilmikil verðmæti. Því má segja að Sorpa sé gullkista sem höfðar til gullgrafarans í okkur öllum,“ segir Ragna og vísar til Góða hirðisins, skrautfjöður Sorpu sem leiðir til endurnotkunar hluta. „Vísir að Góða hirðinum varð til árið 1994 þegar starfsmönnum endurvinnslustöðvar blöskraði hversu margir heillegir hlutir fóru í förgun. Sjarmi Góða hirðisins er að enginn veit hverju hann á von á; þar er enginn fastur lager heldur óvæntar gersemar úr ruslinu á hverjum degi,“ segir Ragna um nytjamarkaðinn vinsæla sem hefur nýst mörgum vel í upphafi búskapar eða við leit að einhverju einstöku á heimilið. Góði hirðirinn er gott dæmi um samstarf íbúa og endurvinnslustöðva þar sem allur ágóði er nýttur til góðgerðarmála og frá árinu 1999 hafa 130 milljónir verið gefnar. Í Sorpu er endurvinnanlegur úrgangur, eins og pappír og plast, sendur til endurvinnslu í Svíþjóð. „Sorpa tekur á móti 36 flokkum úrgangs á endurvinnslustöðvum sínum og flest verður aftur að verðmætum. Þar má nefna lager framtíðar í Álfsnesi þar sem leynist fjölbreytt hráefni. Nú þegar notum við lífrænan hluta sorps sem brotnar niður í hauggas og við hreinsum í metangas. Í dag er það svo flutt á Bíldshöfða sem vistvæn orka og eldsneyti á metanbílaflotann,“ útskýrir Ragna. Þess má geta að Sorpa tekur á móti hópum í fræðslu og mætir einnig í fyrirtæki. Sorpa hefur einnig látið útbúa flokkunartöflu og endurvinnslupoka fyrir flokkaðan úrgang til heimilisnota. Í flokkunartöflunni kemur fram hvaða úrgangur fer í hvern flokk, hvernig ganga á frá úrgangi, hvert á að skila honum og hvað verður um hann í endurvinnsluferlinu. Sjá meira á vef Sorpu.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Alvöru þægindi eftir átján holur Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Sjá meira