Úrval heilsurétta og fæðubótarefna 10. janúar 2013 12:00 Friðfinnur Magnússon, framkvæmdastjóri Sanitas. Mynd/Vilhelm
Sanitas er ung og framsækin heilsu- og matvöruheildsala, stofnuð árið 2010. Fyrirtækið flytur meðal annars inn Nutramino-vörurnar frá Danmörku, en þær er að finna í allflestum matvöruverslunum landsins. "Þetta eru fæðubótarefni, íþróttadrykkir, prótínstangir og margt fleira, en Nutramino er risinn á sínu sviði í Danmörku. Velgengnin byggir fyrst og fremst á því að notuð eru úrvalshráefni og vinna Danir eftir strangasta regluverki í heimi hvað fæðubótarefni snertir,“ segir Friðfinnur Magnússon, framkvæmdastjóri Sanitas. Nýjasta vara fyrirtækisins er taílenskur skyndibiti frá danska vörumerkinu Kitchen Joy. Réttirnir eru framleiddir í Taílandi undir ströngu gæðaeftirliti Evrópusambandsins og hafa slegið rækilega í gegn í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Þeir eru flestir sykur- og glútenlausir og upplagt er að eiga þá í frystinum til að geta útbúið hollan og góðan mat á augabragði. "Við verðum með níu gerðir og ég er ekki í nokkrum vafa um að þeir eigi eftir að falla í kramið hjá Íslendingum, en þeir koma í verslanir á allra næstu dögum.“ Friðfinnur hvetur áhugasama til að skoða heimasíðu fyrirtækisins, sanitaheildverslun.is, en þar er að finna yfirlit yfir allar vörur. "Við erum stolt af vöruúrvalinu og viljum láta gott af okkur leiða með góðum vörum.“
Mest lesið Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Breyta nafni Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Frumvarp um kílómetragjald samþykkt á þingi Viðskipti innlent Breyttur opnunartími hjá Sorpu Neytendur Messenger-forritið heyrir sögunni til Viðskipti erlent Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Síminn fær einn að reka áfram 2G og 3G þjónustu Viðskipti innlent Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Sektað um hundruð þúsunda fyrir nikótínauglýsingar Neytendur Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Yfir milljón dagskrárliðir sóttir vikulega Greiðsluáskorun Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Sjá meira