„Selfoss var mest spennandi kosturinn“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. desember 2013 12:58 Sunnlendingarnir Dagný Brynjarsdóttir (t.v.) og Hólmfríður Magnúsdóttir. Mynd/Heimasíða KSÍ
Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir frá Hellu skrifaði í morgun undir samning við Selfoss. Hún mun leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar. Sunnlenska greinir frá þessu. Dagný hefur undanfarin ár leikið með Valskonum. Hún hefur þó aðeins getað spilað rúmlega helming leikjanna á Íslandsmótinu undanfarin þrjú ár vegna náms síns við Florida State háskólann í Bandaríkjunum. Hið sama verður uppi á teningnum í sumar þar sem hún fer utan til Bandaríkjanna í ágúst. „Það töluðu mörg lið við mig en mér fannst þetta mest spennandi kosturinn. Ég held að ég geti bætt mig sem leikmaður hérna og hjálpað ungu liði með reynslu minni,“ segir Dagný við Sunnlenska. Hún bendir á að einnig verði fínt að geta verið heima eitt sumar og búið á Hellu. Hún á von á góðum stuðningi frá sínu fólki í Rangárþingi. „Fólk að heiman hefur verið duglegt að koma í bæinn á Valsleiki og þannig að ég ætla bara að búast við því að hálf Hella mæti hérna,“ segir Dagný hlæjandi. Dagný er 22 ára gömul og hefur verið í lykilhlutverki með íslenska landsliðinu undanfarin tvö ár. Þá er hún lykilmaður og nýr fyrirliði fótboltaliðs Florida State sem fór alla leið í úrslitaleikinn í NCAA deildinni í ár. Dagný á að baki 36 A-landsleiki auk fjölmargra leikja með yngri landsliðum Íslands.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira