Kidd hefur enn fullan stuðning rússnesku eigendanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. nóvember 2013 12:00 Jason Kidd. Mynd/NordicPhotos/Getty
Það gengur ekkert á fyrsta ári Jason Kidd sem þjálfari í NBA-deildinni í körfubolta en Brooklyn Nets tapaði sínum fimmta leik í röð í gær og er nú með lélegasta árangurinn að öllum liðunum í Atlantshafsriðli Austurdeildarinnar. Brooklyn Nets er með dýrasta liðið í NBA-deildinni og rússneski eigandinn Mikhail Prokhorov þarf að borga himinháa skatta til að hafa alla þessa stjörnuleikmenn í liðinu. Tímabilið mun líklega kosta Mikhail Prokhorov í kringum 190 milljónir dollara eða rúmlega 23 milljarða íslenskra króna. Deron Williams, Brook Lopez, Andrei Kirilenko og Jason Terry misstu allir af leiknum í nótt vegna meiðsla en meiðsli leikmanna afsaka það þó ekki að liðið sé bara búið að vinna 3 af 13 leikjum sínum á leiktíðinni. Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að Jason Kidd hafi þrátt fyrir skelfilegt gengi enn fullan stuðning frá rússnesku eigendum liðsins og að samstarf Kidd og aðstoðarmanns hans, Lawrence Frank, gangi nú betur. „Þetta er okkur að kenna og ekki bara Jason að kenna. Hann á ekki skilið að taka alla skömmina á sig," sagði Kevin Garnett og Paul Pierce talaði á svipuðum nótum. „Allir þurfa að taka ábyrgð, leikmenn og þjálfarar. Við erum í þessum saman og þetta er ekki Kidd að kenna heldur okkur öllum," sagði Pierce.
NBA Mest lesið Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Fótbolti Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Fótbolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Körfubolti Sneypuför danskra til Lundúna Fótbolti Meistararnir lágu á heimavelli Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum „Við þurfum að vera betri varnarlega“ Íslenski körfuboltinn og Grindavík verðlaunuð NBA-leikmaður með krabbamein Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta „Getum verið fjandi góðir“ Uppgjörið: Álftanes-Njarðvík 93-92 | Heitur Haukur var hetjan á Álftanesinu Sjá meira