NBA: Langar sigurgöngur San Antonio og Portland enduðu í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. nóvember 2013 08:33 Goran Dragic. Mynd/NordicPhotos/Getty
Phoenix Suns og Oklahoma City Thunder enduðu 11 leikja sigurgöngur Portland Trail Blazers og San Antonio Spurs í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. LeBron James leiddi Miami til sigurs á hans gamla félagi og Chris Paul meiddist þegar Los Angeles Clippers sá til þess að New York Knicks tapaði sínum sjöunda leik í röð.Kevin Durant var með 24 stig og 13 fráköst þegar Oklahoma City Thunder vann 94-88 sigur á San Antonio Spurs en með því endaði 11 leikja sigurganga San Antonio liðsins. Reggie Jackson (23 stig, hitti úr 10 14 skotum) og Jeremy Lamb (12 stig, hitti úr 5 af 7 skotum) voru dýmætir fyrir Thunder-liðið. Serge Ibaka var með 17 stig og 11 fráköst fyrir OKC sem hefur unnið alla sjö heimaleiki tímabilsins til þessa. Tony Parker var með 16 stig og 7 stoðsendingar fyrir Spurs.Goran Dragic skoraði 31 stig og gaf 10 stoðsendingar þegar Phoenix Suns vann 120-106 sigur á Portland Trail Blazers en Portland var búið að vinna ellefu leiki í röð og hafði ekki tapað síðan á móti Houston Rockets 5. nóvember. Portland hefur aðeins tapað þrisvar í vetur en tveir tapleikjanna hafa komið á móti Phoenix. Channing Frye var með 25 stig fyrir Phoenix og tvíburarnir Markieff Morris (19 stig) og Marcus Morris (15) skoruðu saman 34 stig. LaMarcus Aldridge var stigahæstur hjá Portland með 24 stig.LeBron James skoraði 28 stig, tók 8 fráköst og gaf 8 stoðsendingar þegar Miami Heat vann 95-84 sigur á hans gamla liði Cleveland Cavaliers. Þetta var áttundi sigur Miami í röð og ellefti sigurinn í tólf leikjum á móti Cleveland síðan að James skipti um lið. Dwyane Wade skoraði 22 stig og Michael Beasley var með 17 stig. Dion Waiters var stigahæstur hjá Cleveland með 24 stig.Chris Paul meiddist aftan í læri þegar Los Angeles Clippers vann 93-80 sigur á New York Knicks. Paul var með 15 stig og 7 stoðsendingar og Blake Griffin bætti við 15 stigum og 13 fráköstum. J.J. Redick var líka með 15 stig fyrir Clippers-liðið sem fagnaði sínum áttunda sigri í síðustu tíu leikjum. Carmelo Anthony var með 27 stig í sjöunda tapi New York Knicks í röð.Nick Young kom með 26 stig inn af bekknum þear Los Angeles Lakers vann 99-94 sigur á Brooklyn Nets þrátt fyrir að missa niður 27 stiga forskot. Pau Gasol skoraði 21 stig fyrir Lakers en hjá Nets var Joe Johnson stigaghæstur með 18 stig þrátt fyrir að klikka á 9 af 10 skotum sínum í seinni hálfleik. Paul Pierce var heldur ekki að hjálpa Brooklyn-liðinu mikið með því að nýta aðeins 4 af 17 skotum sínum.Úrslit allra leikja í NBA-deildinni í nótt: Charlotte Bobcats - Indiana Pacers 74-99 Orlando Magic - Philadelphia 76ers 105-94 Boston Celtics - Memphis Grizzlies 93-100 Brooklyn Nets - Los Angeles Lakers 94-99 Cleveland Cavaliers - Miami Heat 84-95 Detroit Pistons - Chicago Bulls 79-99 Houston Rockets - Atlanta Hawks 113-84 Milwaukee Bucks - Washington Wizards 92-100 (framlengt) Minnesota Timberwolves - Denver Nuggets 110-117 Oklahoma City Thunder - San Antonio Spurs 94-88 Dallas Mavericks - Golden State Warriors 103-99 Phoenix Suns - Portland Trail Blazers 120-106 Los Angeles Clippers - New York Knicks 93-80
NBA Mest lesið Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Fótbolti Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? Fótbolti Meistararnir lágu á heimavelli Fótbolti Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Fótbolti Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Handbolti „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum „Við þurfum að vera betri varnarlega“ Íslenski körfuboltinn og Grindavík verðlaunuð NBA-leikmaður með krabbamein Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta „Getum verið fjandi góðir“ Uppgjörið: Álftanes-Njarðvík 93-92 | Heitur Haukur var hetjan á Álftanesinu Sjá meira