Bulls fyrst til að vinna Indiana Pacers Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 17. nóvember 2013 11:15 MYND:NORDIC PHOTOS/AP
Chicago Bulls varð í nótt fyrsta liðið til að leggja Indiana Pacers að velli í NBA körfuboltanum í Bandaríkjunum. Frábær fyrri hálfleikur lagði grunninn að öruggum 16 stiga sigri Bulls 110-94. Pacers hafði unnið níu fyrstu leiki sína þar til liðið ferðaðist til Chicago í nótt. Bæði lið voru að leika aðra nóttina í röð en aðeins Pacers virkaði þreytt. Bulls var ellefu stigum yfir eftir fyrsta leikhluta og í hálfleik var liðið 25 stigum yfir 60-35 og úrslitin í raun ráðin. Sjö leikmenn Bulls skoruðu tíu stig eða meira. Luol Deng skoraði þeirra mest, 23 stig og Derrick Rose skoraði 20 stig. Taj Gibson skoraði 15 stig af bekknum. Allt byrjunarlið Pacers skoraði ellefu stig eða meira en þó enginn meira en Roy Hibbert sem skoraði 14 stig auk þess að taka 10 fráköst á 29 mínútum. Chris Copeland skoraði 13 stig af bekknum. Góð vítanýting Dwight Howard lagði grunninn að 122-111 sigri Houston Rockets á Denver Nuggets á heimavelli í nótt. Howard hitti úr 17 af 24 vítum sínum. Howard skoraði 25 stig og mest fyrir Rockets. Chandler Parsons skoraði 20 stig. Ty Lawson var lang bestur í liði Nuggets og skoraði 28 stig auk þess að gefa 17 stoðsendingar. Hann kom að 28 af 45 körfum Nuggets í leiknum. Kyrie Irving fór á kostum fyrir Cleveland Cavaliers í nótt. Hann skoraði 41 stig í sjö stiga sigri á Washington Wizards 103-96. Irving hitti úr helming skota sinna utaf af velli, þar af fjórum af sjö þriggja stiga skotum auk þess að setja öll níu vítin sín niður. Bradley Beal skoraði 28 stig fyrir Wizards og Nene 24. LeBron James var eini leikmaður byrjunarliðs Miami Heat sem skoraði yfir átta stig í öruggum sigri á Charlotte Bobcats í nótt 97-81. James skoraði 30 stig en hann hitti úr 13 af 18 skotum sínum. Michael Beasley skoraði 15 stig af bekknum hjá Heat. Kemba Walker fór fyrir Bobcats með 22 stig. Jeff Taylor skoraði 14 af bekknum. Öll úrslit næturinnar: Charlotte Bobcats - Miami Heat 81-97 Orlando Magic - Dallas Mavericks 100-108 Washington Wizards - Cleveland Cavaliers 96-103 New York Knicks - Atlanta Hawks 90-110 Chicago Bulls - Indiana Pacers 110-94 Houston Rockets - Denver Nuggets 122-111 Minnesota Timberwolves - Boston Celtics 106-88 New Orleans Pelicans - Philadelphia 76ers 135-98 Milwaukee Bucks - Oklahoma City Thunder 79-92 Golden State Warriors - Utah Jazz 102-88 Los Angeles Clippers - Brooklyn Nets 110-103
NBA Mest lesið Endaði á sjúkrahúsi eftir árás frá kú Sport Elsti maraþonhlaupari sögunnar varð fyrir bíl og lést Sport Trump fékk alvöru bikarinn en Chelsea aðeins eftirlíkingu Fótbolti Liverpool tilbúið að slá metið aftur Enski boltinn Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Enski boltinn Seldu fyrir 44 milljónir evrur meira en þeir borguðu Man. Utd ári áður Sport Einn af hinum smávöxnu í afmæli Yamal kemur stráknum til varnar Fótbolti Totti í harðri forræðisdeilu um fjögur Rolex úr Fótbolti „Það var engin taktík“ Fótbolti Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Enski boltinn Fleiri fréttir Oladipo með augastað á endurkomu Enginn Kobe Bryant á topp tíu yfir þá bestu í sögunni Wembanyama fær grænt ljós frá læknateymi Spurs Raggi Nat á Nesið Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Stólarnir semja við spænskan leikstjórnanda Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Strákarnir unnu Slóvena á EM Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Sjá meira