Lífið

Vegleg laun fyrir að kynna Golden-Globe hátíðina

Tina Fey og Amy Poehler
Tina Fey og Amy Poehler AFP/NordicPhotos
Tina Fey og Amy Poehler eru samkvæmt heimildum slúðurmiðla vestanhafs að fá veglega greitt fyrir að kynna Golden Globe-verðlaunahátíðina á næsta ári.

Fyrr í vikunni greindi RadarOnline.com frá því að Fey og Poehler myndu fá sitthvorar tvær til fimm milljónir dollara fyrir að kynna hátíðina. Það er meira en nokkur Óskarsverðlauna-kynnir hefur fengið að undanskildnum Billy Crystal, sem fékk litlar fimm milljónir dollara greidda fyrir að kynna Óskarinn.

Eftir að fréttir hófu að birtast um launaseðil tvíeykisins sendu þær frá sér yfirlýsingu sem birtist í Vanity Fair þar sem þær sögðu upphæðina í frétt RadarOnline gróflega ýkta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.