Fótbolti

Kastljósið: Starfsmaður KSÍ lét vita af því á netinu hvenær miðasalan átti að hefjast

Þórir Hákonarson og Geir Þorsteinsson.
Þórir Hákonarson og Geir Þorsteinsson. Mynd/Stefán
Starfsmaður Knattspyrnusambands Íslands auglýsti upphafstíma miðasölunnar á leik Íslands og Króatíu í lokuðum hópi á fésbókinni samkvæmt heimildum Kastljóssins á RÚV og var Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, spurður út í málið í kvöld.

Sigmar Guðmundsson, sem var með Þóri í viðtali, sagði í Kastljósinu á RÚV að hann hefði upplýsingar um það að starfsmaður KSÍ hafi sagt inn í lokuðum hóp á fésbókinni að salan færi af stað klukkan fjögur um nóttina. Sigmar spurði Þóri út í þetta og um hvað KSÍ ætlaði að gera í því máli.

„Ég hef ekki vitneskju um það og segi það alveg eins og er," segir Þórir en Sigmar spurði hann þá út í hvað margir vissu þetta.

„Það voru ekki margir starfsmenn sambandsins sem vissu nákvæma tímasetningu á þessu. Það hafa kannski verið þrír til fjórir sem vissu af þessu," svaraði Þórir sem ætlar að kanna þetta mál betur.

En kemur til greina hjá Þóri og KSÍ að endurkalla alla miðana og láta miðasöluna fara fram á nýjan leik.

„Í augnablikinu tel ég ekki ástæðu til að innkalla miðana því ég held að það myndi skapa meiri vandamál en að það myndi leysa. Við munum hugleiða þetta betur en allur dagurinn er búinn að fara í þetta mál. Við höfum því ekki getað sest niður og farið almennilega yfir það," sagði Þórir.

Þórir segist heldur ekki hafa haft tíma til að íhuga stöðu sína og hvort að það komi til greina hjá honum að segja af sér vegna þessa máls.  „Ég hef ekki tekið neina ákvörðun um það hvort ég ætla að hætta eða ekki. Það sem gerðist núna er hlutur sem við munum öll læra af og þá er ég ekki bara að tala um mig persónulega," sagði Þórir.

„Ég mun standa eða falla með þessari ákvörðun og við skulum síðan sjá hvað tíminn leiðir í ljós í þeim efnum. Ég hef satt best að segja ekki haft neinn tíma til að vera að íhuga það eða eitthvað annað en þetta miðasölumál í dag," sagði Þórir.


Tengdar fréttir

Fékk rangar upplýsingar um hvenær miðasala hæfist

"Ég hringdi í Mida.is í gær og maðurinn sagði mér að miðasala myndi byrja í fyrsta lagi klukkan 10 eða þá klukkan 12,“ segir Sigmundur Einar Jónsson, grjótharður stuðningsmaður íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu.

"KSÍ er ekki geðslegur klúbbur“

Margir Íslendingar hafa brugðist illa við fréttum af því að uppselt hafi orðið um miðja nótt á landsleikinn.

Yfirlýsing frá KSÍ: 5000 miðar voru í boði fyrir almenning

Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, segir að íslensk fyrirtæki hafi sóst eftir mörg þúsund miðum á landsleik Íslands og Króatíu í umspili um laust sæti á HM í Brasilíu. Hann biðst afsökunar á því hvernig staðið var að miðasölunni.

Króatískir fjölmiðlar fjalla um miðasölu KSÍ

Króatískir fjölmiðlar fjalla í dag um miðasölu KSÍ á landsleik Íslands og Króata í umspili um sæti á heimsmeistaramótið í Brasilíu sem fram fer á næsta ári.

Næturmiðarnir komnir á Bland

Miðar ganga nú þegar kaupum og sölum á leik Íslands og Króatíu. Á síðunni bland.is má sjá þó nokkrar auglýsingar þar sem óskað er eftir miðum en einnig hafa miðar verið boðnir til sölu.

KSÍ afturkallar miðakaup

"Ég hef fengið ábendingar um að einhverjir hafi keypt óeðlilega mikið af miðum og séu að selja þá á öðrum miðlum,“ segir Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri Knattspyrnusambands Íslands.

Brjálað að gera í símanum hjá fórnarlambi miðasöluhrekks

"Ég fékk enga miða á leikinn og setti því ekki inn auglýsingu um að ég ætti miða til sölu,“ segir Stefán Þór Helgason, verkefnastjóri hjá Klak Innovit. Óprúttinn aðili auglýsti miða á leik Íslands og Krótatíu til sölu í hans nafni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×