Telma Hjaltalín og félagar í bikarúrslit eftir dramatík Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. október 2013 15:41 Telma Hjaltalín (t.h.) í leik með Aftureldingu í sumar. Mynd/Stefán
Tvö mörk á fimm mínútum undir lok framlengingar tryggði Stabæk 4-3 sigur á Lilleström og sæti í úrslitaleik norska bikarsins í knattspyrnu. Óhætt er að segja að leikurinn hafi verið stórkostleg skemmtun enda komu mörkin á færibandi. Lilleström hafði frumkvæðið í venjulegum leiktíma. Liðið komst í 1-0 og 2-1 en alltaf jöfnuðu heimakonur með glæsimörkum. Í framlengingunni komst Lilleström í 3-2 með fallegu skoti upp í vinkilinn og þannig stóðu leikar þar til fimm mínútur voru eftir af framlengingunni. Þá jöfnuðu heimakonur og tryggðu sér svo sæti í úrslitaleiknum með marki í viðbótartíma framlengingar. Stabæk mætir Íslendingaliðinu Avaldsnes í bikarúrslitaleiknum. Avaldsnes vann stórsigur á Vålerenga 5-1 í gær þar sem Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði fjögur mörk. Telma Hjaltalín Þrastardóttir kom ekkert við sögu hjá Stabæk í dag. Hún getur orðið bikarmeistari í annað skiptið en Stabæk varð bikarmeistari árið 2011. Hún kom þá inn á í úrslitaleiknum aðeins sextán ára gömul.Markaskorari Lilleström sýndi stuðningsmönnum Stabæk skýr skilaboð í dag. Þeir fögnuðu hins vegar áður en yfir lauk.Skjáskot/NRK1
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Harmur hrokagikksins Haaland Enski boltinn Þrír boðaðir í viðtal: Víkingar gáfu KSÍ grænt ljós á að ræða við Arnar Fótbolti Gary sem stal jólunum Enski boltinn Þakið ætlaði að rifna af Ally Pally eftir níu pílna leik Heta Sport Tveir látnir úr sitthvorri áhöfninni í siglingakeppni í Sydney Sport Freyr einnig í viðtal og einn erlendur Fótbolti Enginn verið jafn fljótur að tapa fjórum deildarleikjum Enski boltinn Tapaði níu leggjum í röð eftir níu pílna leik og var sendur heim Sport Telur daga McGregor í UFC talda Sport „Ég var að skjóta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Enn eitt skráningarvesenið hjá Börsungum Veit að starfið gæti verið í hættu ef liðið fer ekki að vinna Freyr einnig í viðtal og einn erlendur Þrír boðaðir í viðtal: Víkingar gáfu KSÍ grænt ljós á að ræða við Arnar Emilía til Leipzig Skilaboð frá Klopp minntu hann á áfangann: „Við elskum hann“ „Ég var að skjóta“ Víkingur má ekki spila í Kópavogi og leitar vallar erlendis Harmur hrokagikksins Haaland Eftirmaður Amorims rekinn eftir átta leiki City ætlar að kaupa í janúar Gary sem stal jólunum Liverpool hefur áhuga á framherja PSG Amorim hefur ekki hugmynd um hversu lengi hann verður að laga United Ættingi Endricks skotinn til bana Enginn verið jafn fljótur að tapa fjórum deildarleikjum Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Andri skoraði fyrir Gent í fyrsta sinn síðan í september Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Skoraði beint úr hornspyrnu eftir að United missti mann af velli Jason Daði sneri aftur í lið Grimsby og skoraði Willum í byrjunarliðinu er Birmingham tók toppsætið Slæmur skellur fyrir gestina á St. James Park Stefndi allt í sigur Chelsea en Fulham hafði aðrar hugmyndir Sáu ekki til sólar en unnu samt Hafa tvisvar áður mæst: „Gakpo er sem betur fer í mínu liði núna“ Haaland klúðraði víti og City tapaði stigum Tók „erfiðustu ákvörðun ævinnar“ og fór til Valencia Látnir gista líka á æfingasvæðinu Fimm hlutu dóm fyrir ólætin í Amsterdam Sjá meira