Umfjöllun: Stjarnan - Breiðablik 6-0 | Mörkin og myndasyrpa Stefán Árni Pálsson skrifar 15. september 2013 00:01
Stjarnan fullkomnaði tímabilið í Pepsi-deild kvenna í dag þegar liðið bar sigur úr býtum gegn Blikum, 6-0, á Samsung-vellinum í Garðabæ. Liðið vann alla leiki tímabilsins og hafnaði því í langefsta sæti deildarinnar með 54 stig. Í spilaranum að ofan má sjá mörkin auk helstu færa úr leiknum. Einsdæmi í tíu liða deild í knattspyrnusögunni á Íslandi. Heimastúlkur tóku á móti Íslandsmeistaratitlinum í Garðabæ í dag. Vísir óskar liðinu innilega tilhamingju með þennan merka áfanga. Leikurinn hófst heldur betur vel fyrir heimastúlkur en Elva Friðjónsdóttir skoraði á þriðju mínútu leiksins og gaf tóninn fyrir heimamenn. Danka Podovac gerði annað mark Stjörnunnar á 18. mínútu leiksins og heimamenn komnar með fín tök á leiknum. Harpa Þorsteinsdóttir gerði síðan þriðja mark leiksins og jafnframt 27. mark hennar á tímabilinu með Stjörnunni. Staðan var 3-0 í hálfleik og útlit fyrir fullkomið tímabil hjá Stjörnunni. Vinurinn var mikill í síðari hálfleiknum en Danka Podovac skoraði sitt annað mark í leiknum tuttugu mínútum fyrir leikslok og síðan skoraði Harpa Þorsteinsdóttir sitt 28. mark í Pepsi-deildinni þremur mínútum síðar. Kristrún Kristjánsdóttir skoraði síðan sjötta mark Stjörnunnar rúmlega tíu mínútum fyrir leikslok. Algjör sýning á Samsung-vellinum og Íslandsmeistararnir að rúlla yfir Bikarmeistarana. Niðurstaðan því sex mörk Stjörnunnar gegn engu marki Blika og fullkomið tímabil Stjörnunnar að veruleika. Liðið tapaði ekki stigi í sumar.Mynd/Daníel
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira