Harpa: Þetta er mitt besta tímabil Henry Birgir Gunnarsson skrifar 28. ágúst 2013 22:05 Harpa Þorsteinsdóttir fagnar í kvöld. Mynd/Daníel
Harpa Þorsteinsdóttir hefur átt ótrúlegt tímabil með Stjörnunni og er að flestra, ef ekki allra, besti leikmaður tímabilsins. Hún brosti breitt eftir að Íslandsmeistaratitillinn var kominn í hús eftir 4-0 sigur á Val í Pepsi-deildinni í kvöld. "Ég er svo ánægð að það er erfitt að lýsa því. Ég var aðeins búin að spá í að þessi staða gæti komið upp. Ég var að vonast eftir þessu og það er ánægjulegt að hafa landað þessu núna," sagði Harpa skælbrosandi. Hún var þó nokkuð þreytt enda fór Pála Marie Einarsdóttir, varnarmaður Vals, ansi harkalega með hana í kvöld og braut gróflega á henni. "Það er langt síðan ég spilaði leik svona lemstruð. Hún tæklaði mig nokkrum sinnum harkalega en maður verður að standa það af sér. Þetta var prófraun," sagði Harpa en er eitthvað illt á mili þeirra? "Nei, alls ekki. Ég held að minnsta kosti ekki. Hún sendir mér bara bréf ef hún er eitthvað ósátt við mig," sagði Harpa og hló. "Þetta er frábært lið. Frábærir leikmenn og góð blanda af yngri og reyndari leikmönnum. Við höfum samt spilað flestar lengi saman og þekkjum hvor aðra mjög vel." Eins og áður segir hefur Harpa farið á kostum í sumar. Er þetta hennar besta tímabil á ferlinum? "Já, ég held að þetta sé mitt besta tímabil. Það eru forréttindi að vera framherji í svona liði. Allt liðið er að spila mjög vel og ég græði á því," sagði Harpa hógvær.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Hjörvar gaf goðsögninni búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira