Breiðablik hélt öðru sætinu | Myndir og myndband Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. júní 2013 13:12
Breiðablik vann sannfærandi 3-1 sigur á ÍBV í toppslag í Pepsi-deild kvenna og heldur því í við Stjörnukonur á toppi deildarinnar. Heimamenn voru sterkari aðilinn í leiknum en það voru þó gestirnir úr Eyjum sem komust yfir þegar að Shaneka Gordon komst ein inn fyrir á 22. mínútu og afgreiddi knöttinn snyrtilega í fjærhornið. Breiðablik jafnaði svo metin þegar að Rosie Sutton varð fyrir því óláni að skalla fyrirgjöf Rakelar Hönnudóttur í eigið mark á 35. mínútu. Rakel var svo sjálf að verki fimm mínútum síðar og kom Blikum yfir með umdeildu marki. Hún skoraði af stuttu færi en virtist hafa lagt boltann fyrir sig með höndinni. Markið var engu að síður dæmt gilt þrátt fyrir mótmæli Eyjamanna. Það var svo fyrrum leikmaður ÍBV, Berglind Björg Þorvaldsdóttir, sem innsiglaði 3-1 sigur Breiðabliks með laglegu skoti úr teignum eftir sendingu Ingibjargar Sigurðardóttur sem kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik. Breiðablik er því komið með átján stig, jafn mörg og Stjarnan sem á leik til góða. ÍBV situr eftir í þriðja sæti með þrettán stig.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Fótbolti Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslenski boltinn Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn City að vinna United í slagnum um Anderson Enski boltinn Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn Sædís skoraði og ótrúleg ferna liðsfélaga Hildar Fótbolti Brynjar Ingi sigldi öruggu sæti í höfn Fótbolti Fleiri fréttir Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Rodri ekki meira með KA í ár Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi „Þetta er frá meistara Jankó” Uppgjörið: Fram - Þór/KA 3-2 | Sendu norðankonur á botninn Haukar ósigraðir á toppnum Uppgjörið: ÍBV - Grindavík/Njarðvík 1-1 | Dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Við réðum ekkert við þá“ „Þetta small saman í kvöld“ Afturelding við hlið Þróttar á toppnum eftir mikinn markaleik „Sérstaklega sætt að vinna hér á KA vellinum“ Uppgjörið: Stjarnan - Fram 0-1 | Sigurmark Róberts færir Fram nær toppnum Víkingur R. - FH 5-0 | Markaveisla í Víkinni Sjá meira