Tvö mörk á fyrsta hálftímanum dugðu Stjörnunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. maí 2013 17:45 Harpa Þorsteinsdóttir. Mynd//Valli
Stjarnan vann 2-1 sigur á Þór/KA í 2. umferð Pepsi-deildar kvenna í fótbolta í kvöld en leikurinn fór fram á Þórsvelli á Akureyri. Íslandsmeistarar Þór/KA eru því bara með eitt stig eftir tvo fyrstu leiki sína í titilvörninni en Stjarnan er aftur á móti með fullt hús. Harpa Þorsteinsdóttir skoraði þrennu í sigri Stjörnunnar í fyrstu umferðinni og hún kom að báðum mörkum liðsins í kvöld. Harpa skoraði fyrra markið og lagði upp það síðara. Stjörnukonur voru miklu betri í fyrri hálfleiknum en norðankonur léku mun betur í seinni hálfleiknum. Harpa fékk tvö mjög góð færi á upphafsmínútunum, fyrst varði Helena Jónsdóttir frá henni en svo skallaði Harpa í slá eftir fyrirgjöf frá Rúnu Sif Stefánsdóttur. Harpa skoraði síðan fyrsta markið á 11. mínútu þegar hún kom boltanum inn fyrir línuna af stuttu færi eftir að Ásgerður Stefanía Baldursdóttir skallaði áfram hornspyrnu frá Rúnu Sif Stefánsdóttur. Elva Friðjónsdóttir bætti við öðru marki á 27. mínútu leiksins eftir flotta stoðsendingu frá Hörpu sem hafði unnið boltann af varnarmönnum Þór/KA. Tahnai Annis átti skot í slá á upphafsmínútum seinni hálfleiksins og Mateja Zver minnkaði muninn á 65. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf frá Kayle Grimsley. Nær komust heimastúlkur ekki og Stjarnan fagnaði mikilvægum sigri.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira