Lykilmaður Bulls verður ekki með í oddaleiknum í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2013 20:43 Luol Deng og Joakim Noah. Mynd/NordicPhotos/Getty
Brooklyn Nets og Chicago Bulls mætast í kvöld í Brooklyn í hreinum úrslitaleik um sæti í 2. umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Chicago Bulls komst í 3-1 í einvíginu en Nets-liðið hefur unnið tvo leiki í röð og náð að jafna metin í 3-3. Chicago Bulls var án Derrick Rose í vetur en komst engu að síður í úrslitakeppnina. Liðið hefur verið einkar óheppið með meiðsli og veikindi í þessu einvígi. Luol Deng verður ekki með í oddaleiknum og þá er áfram óvissa um þátttöku Kirk Hinrich en þeir hafa báðir misst af síðasta leik. Þetta eru tveir af bestu varnarmönnum liðsins og gríðarlega mikilvægir fyrir Tom Thibodeau þjálfara. Kirk Hinrich er meiddur á kálfa en Luol Deng glímir við veikindi og þurfti að leggjast inn á sjúkrahús vegna þeirra. Það var flensa að ganga í liði Chicago Bulls og bæði Nate Robinson og Taj Gibson spiluðu veikir í síðasta leik. Það er þó ljóst að það er ekki hin dæmigerða flensa sem hrjáir Luol Deng og hann fylgist því með leiknum af sjúkrabeðinu í kvöld. Leikurinn fer fram í Barclays Center sem er nýjasta NBA-höllin. Brooklyn Nets hét áður New Jersey Nets en liðið náði því aldrei að spila oddaleik (Leik númer 7) á þeim 35 árum sem félagið hafði aðsetur í New Jersey.
NBA Mest lesið „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Fótbolti Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Fótbolti Böl Börsunga í Belgíu Fótbolti Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Körfubolti „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Sport Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Enski boltinn Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Handbolti Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Fótbolti Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum Sjá meira