Loksins hagnaður af rekstri FIH bankans 8. maí 2013 12:31
Hagnaður varð af rekstri FIH bankans í Danmörku á fyrsta ársfjórðungi ársins. Hagnaðurinn nam 16 milljónum danskra króna eða um 330 milljónum kr. fyrir skatta. Þetta er besta uppgjör bankans á síðustu 10 ársfjórðungum.Í frétt um málið á vefsíðu Börsen segir að bankinn sé nú að ljúka við að borga til baka afganginn af 50 milljarða danskra kr. ríkisábyrgð sem hann fékk fyrir þremur árum. Verða síðustu 10 milljarðarnir gerðir upp á yfirstandandi ársfjórðungi. Eigið fé FIH bankans nemur rúmum 5,5 milljörðum danskra króna og er eiginfjárhlutfallið komið í rúm 20% eða vel yfir lágmarksmörkum. Í fréttinni kemur fram að verulega hafi dregið úr afskriftum bankans á ónýtum lánum og námu þær 35 milljónum danskra kr. á ársfjórðungum. Eins og oft hefur komið fram í fréttum eru endurheimtur Seðlabanka Íslands af sölunni á FIH bankanum árið 2010 bundnar við gengi FIH fram til ársloka 2014. Almennt hefur verið talið að Seðlabankinn hafi hingað til tapað yfir helmingnum af söluverðinu sem var 5 milljarðar danskra kr. Fyrrgreint ársuppgjör gæti bent til þess að þetta tap Seðlabankans verði ekki eins mikið þegar upp er staðið.
Mest lesið Vaka stýrir Collab Viðskipti innlent Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Viðskipti erlent Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Viðskipti innlent Orkan og Samkaup fá grænt ljós á sameiningu Viðskipti Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Viðskipti innlent Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Slæm vinnustaðamenning: Minni afköst, verri frammistaða, fleiri fjarvistir Atvinnulíf Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira