Öll loftræstikerfi þarf að hreinsa reglulega 18. febrúar 2013 10:00 Sigurður Jónsson þjónustufulltrúi og Magnús Ásmundsson verkstjóri hjá K2 Loftstokkahreinsun. Mynd/Vilhelm
K2 Loftstokkahreinsun sérhæfir sig í hreinsun og sótthreinsun loftræstikerfa og hefur yfir áratuga reynslu af hreinsun loftræstikerfa á Íslandi, hvort sem er á landi eða sjó. Fagmennska og góð þjónusta eru einkunnarorð fyrirtækisins. K2 Loftstokkahreinsun er fyrirtæki sem sérhæfir sig í hreinsun loftræstikerfa hjá fyrirtækjum og í heimahúsum. Að sögn verkstjórans Magnúsar Ásmundssonar er einn helsti kostur fyrirtækisins að geta boðið upp á heildarlausn í hreinsun og viðhaldi loftræstikerfa. Viðskiptavinir geta fengið ráðgjöf og ástandsskoðun hjá fyrirtækinu sér að kostnaðarlausu, að sögn Magnúsar. „Ef viðskiptavin grunar að loftræsting sé ekki að virka sem skyldi getur hann pantað ástandsskoðun hjá okkur. Okkar maður mætir á staðinn og fer yfir loftræstinguna með honum. Ef þörf er á hreinsun förum við yfir hvaða valmöguleikar eru í boði og gerum svo tilboð út frá óskum viðskiptavinarins, honum að kostnaðarlausu. Sumir vilja láta taka loftræstinguna í gegn, sem hefur kannski gleymst í mörg ár, en aðrir vilja koma hreinsun og viðhaldi loftræstikerfis í reglulega þjónustu. Þá setjum við upp þjónustusamning þar sem við komum reglulega og sjáum um að halda kerfinu hreinu og fylgjumst með að loftræstingin sé ávallt í lagi. Sem dæmi hafa margir veitingastaðir gert þjónustusamninga við okkur þar sem við komum alltaf með ákveðnu millibili og pössum að ekki safnist of mikil fita í kerfin hjá þeim. Af og til vaknar grunur um myglu í loftræstikerfum og þá þarf að kanna það og bregðast hratt við ef sú er raunin."Loftræstikerfi eru víða Til marks um þau ólíku verkefni sem K2 Loftstokkahreinsun sinnir bendir Magnús á að loftræstikerfi leynast víða. „Við erum að hreinsa loftræstikerfi út um allt land. Meðal annars má nefna skrifstofubyggingar sem eru flestar með flókin loftræstikerfi og margar skrifstofur sem eru komnar með kælirafta í loftin sem verður að passa vel upp á. Einnig má nefna einbýlis- og fjölbýlishús, verksmiðjur, veitingastaði og margt fleira. Og ekki má gleyma skipaflotanum. Við hreinsum reglulega skip fyrir útgerðir landsins því þar skiptir ekki síður máli að loftræsting virki sem skyldi því ekki opna menn glugga um borð til að hleypa inn fersku lofti," segir Magnús og hlær. „Mikill misskilningur ríkti áður fyrr um að ekki þyrfti að þrífa loftræstikerfi heldur væri nóg að skipta bara um síur reglulega. Það hefur breyst mikið og í dag gera flestir sér grein fyrir því að það þarf að þrífa reglulega til að hreina loftið okkar skili sér hreint alla leið inn til okkar. Við eyðum stórum hluta tíma okkar innandyra og ef loftið sem blæs inn til okkar þarf að ferðast langar vegalengdir í gegnum óhreina loftstokka getur það haft slæm áhrif á líðan fólks," bætir hann við.Snyrtilegir og vandvirkir „Eins og gefur að kynna fer mestöll starfsemi okkar fram á vinnustað eða heimili fólks og leggjum við gríðarlega áherslu á það í starfi okkar að vera snyrtilegir og vandvirkir í því sem við gerum. Það skiptir viðskiptavininn miklu máli að ekki fylgi sóðaskapur eða annað ónæði því að láta hreinsa loftræstikerfi. Þeir hafa fyrir löngu lært að treysta því enda höfum við frá stofnun fyrirtækisins árið 1999 haft það sem markmið að veita viðskiptavininum bestu mögulegu þjónustu sem í boði er. Við viljum helst að fólk sjái engin ummerki um komu okkar aðra en þá að loftræstingin sé að skila hreinu og fersku lofti á ný," bendir hann á. Að lokum bendir Magnús á að engin vandamál séu án lausnar og hafi fólk einhverjar spurningar varðandi hreinsun eða ástand loftræstikerfa sé hægt að nálgast allar upplýsingar á heimasíðu fyrirtækisins k2.is eða hringja í síma 55 77 000 þar sem Sigurður Jónsson þjónustufulltrúi aðstoðar fólk eftir fremstu getu. Sigurður er einn af stofnendum fyrirtækisins og býr hann að áralangri þekkingu þegar kemur að hreinsun og viðhaldi loftræstikerfa.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Alvöru þægindi eftir átján holur Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Sjá meira