NBA: Golden State vann Oklahoma City - fjögur töp í röð hjá Lakers Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2013 09:00 Mynd/NordicPhotos/Getty
Golden State Warriors heldur áfram að vinna flotta sigra í NBA-deildinni í körfubolta en liðið vann topplið Oklahoma City Thunder í nótt tveimur dögum eftir að liðið vann Los Angeles Clippers, næstbesta lið deildarinnar. Los Angeles Lakers tapaði enn einum leiknum og LeBron James var með þrennu í sigri Miami í framlengdum leik. San Antonio Spurs vann fimmtánda heimaleikinn í röð og Brooklyn Nets er eins og nýtt lið undir stjórn P.J. Carlesimo.Stephen Curry var með 31 stig og 7 stoðsendingar í 104-99 heimasigri Golden State Warriors á Oklahoma City Thunder. David Lee var með 22 stig og 12 fráköst. Þetta var þriðji sigur Golden State í röð. Kevin Durant var með 33 stig og 9 stoðsendingar hjá Thunder en OKC-liðið missti niður átta stiga forskot í lokaleikhlutanum.Darrell Arthur skoraði 20 stig og Mike Conley var með 19 stig þegar Memphis Grizzlies vann 106-93 heimasigur á Los Angeles Lakers. Lakers tapaði þar með fjórða leiknum í röð og tíunda leiknum í tólf leikjum á árinu 2013. Þetta var ennfremur sjöunda tap LA Lakers í röð á útivelli. Kobe Bryant skoraði 29 stig fyrir Lakers og Metta World Peace var með 15 stig. Dwight Howard meiddist á öxl í leiknum og lék ekkert í seinni hálfleiknum.Dwyane Wade skoraði 35 stig og LeBron James var með 31 stig, 11 stoðsendingar og 10 fráköst þegar Miami Heat vann 123-116 sigur á Toronto Raptors í framlengdum leik. Þetta var 34. þrenna James á ferlinum. Miami-liðið var fimmtán stigum undir um tíma í leiknum en endaði framlenginguna á 13-2 spretti. Ray Allen var með 18 stig en hjá Toronto skoraði Alan Anderson mest eða 20 stig.Brook Lopez skoraði 22 stig þegar Brooklyn Nets vann Minnesota Timberwolves 91-83 á útivelli en þetta var tólfti sigur liðsins í fjórtán leikjum undir stjórn P.J. Carlesimo. Deron Williams og Joe Johnson voru báðir með 18 stig en Andrei Kirilenko skoraði mest fyrir Minnesota eða 15 stig.Tony Parker var með 24 stig og 13 stoðsendingar þegar San Antonio Spurs vann 106-102 heimasigur á New Orleans Hornets en liðið lék án bæði Tim Duncan (meiddur í hné) og þjálfara síns Gregg Popovich (veikur). Tiago Splitter var með 25 stig og 7 fráköst í fimmtánda heimasigri Spurs í röð en Eric Gordon skoraði mest fyrir Hornets-liðið eða 17 stig.Josh Smith var með 30 stig, 13 fráköst og 8 stoðsendingar í 104-92 útisigri Atlanta Hawks á Charlotte Bobcats.Öll úrslitin í NBA-deildinni í nótt: Charlotte Bobcats - Atlanta Hawks 92-104 Miami Heat - Toronto Raptors 123-116 (framlenging) Chicago Bulls - Detroit Pistons 85-82 Memphis Grizzlies - Los Angeles Lakers 106-93 Houston Rockets - Denver Nuggets 95-105 Minnesota Timberwolves - Brooklyn Nets 83-91 San Antonio Spurs - New Orleans Hornets 106-102 Utah Jazz - Washington Wizards 92-88 Sacramento Kings - Phoenix Suns 96-106 Portland Trail Blazers - Indiana Pacers 100-80 Golden State Warriors - Oklahoma City Thunder 104-99
NBA Mest lesið Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Norskur ólympíumedalíuhafi látinn eftir að eldingu laust í höfuð honum Sport Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Golf Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Sport Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Handbolti Vilja hefja golfmótið á morgun: „Látum þetta ekki á okkur fá“ Golf Grænt ljós á golfmótið þrátt fyrir gos Golf Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur Körfubolti Fleiri fréttir Bradley Beal til Clippers Íslensku strákarnir töpuðu stórt í sextán liða úrslitunum Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Elvar Már til Póllands Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Oladipo með augastað á endurkomu Enginn Kobe Bryant á topp tíu yfir þá bestu í sögunni Wembanyama fær grænt ljós frá læknateymi Spurs Raggi Nat á Nesið Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Stólarnir semja við spænskan leikstjórnanda Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Strákarnir unnu Slóvena á EM Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Sjá meira