Lífið

Með lungnabólgu

Verðlaunaleikkonan unga Jennifer Lawrence á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. Hún er nýhætt með kærasta sínum og er núna komin með lungnabólgu.

Jacki Weaver, sem leikur með Jennifer í kvikmyndinni Silver Linings Playbook, færði veikindafréttirnar á áströlsku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaununum sem haldin voru í Los Angeles um helgina. Jacki tók við verðlaunum Jennifer fyrir hennar hönd fyrir bestan leik í aðalhlutverki.

Glæsileg á Golden Globes.
"Ég ætla að taka við þessu fyrir hennar hönd. Greyið Jen er mjög veik. Hún er með lungnabólgu," sagði Jacki.

Lífið óskar henni að sjálfsögðu góðs bata.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.