Valskonur Íslandsmeistarar í futsal kvenna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. janúar 2013 13:46 Valskonur byrja nýja árið vel. Mynd/Arnþór
Svava Rós Guðmundsdóttir tryggði Valskonum Íslandsmeistaratitilinn í innanhússknattspyrnu, futsal, þegar hún skoraði sigurmarkið þremur sekúndum fyrir leikslok í dramatískum 6-5 sigri á ÍBV í úrslitaleik í Laugardalshöllinni í dag. ÍBV komst í 5-2 í úrslitaleiknum en Valskonur skoruðu fjögur mörk á síðustu fimm mínútum leiksins. Eyjakonur áttu titil að verja og það leit allt út fyrir það að þær væru á leiðinn til Eyja með bikarinn þegar þær komust í 5-2 í seinni hálfleiknum. Valsliðið gafst hinsvegar ekki upp og Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði tvö síðustu mörk liðsins í leiknum. Elísa Viðarsdóttir skoraði fyrsta mark ÍBV-liðsins eftir tæpar sjö mínútur en staðan var 1-1 í hálfleik eftir að Telma Ólafsdóttir jafnaði leikinn tveimur mínútum síðar. Svana Rún Hermannsdóttir kom Val yfir í upphafi seinni hálfleiks en það tók Sigríði Láru Garðarsdóttur og Sóleyju Guðmundsdóttur aðeins 24 sekúndur að koma ÍBV aftur yfir í 3-2. Hlíf Hauksdóttir og Elísa kom Eyjaliðinu síðan þremur mörkum yfir, 5-2, þegar aðeins rúmlega sex mínútur voru eftir af leiknum. Það dró hinsvegar af Eyjaliðinu á lokakaflanum. Dóra María Lárusdóttir minnkaði muninn fjórum og hálfri mínútu fyrir leikslok og Valskonur jöfnuðu síðan með tveimur mörkum á sex sekúndum. Elín Metta Jensen skoraði það fyrra en Svava Rós Guðmundsdóttir það síðara. Valsliðið hélt áfram að pressa og Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði síðan sigurmarkið þegar aðeins 3,32 sekúndur voru eftir á klukkunni. Valsliðið spilaði á fleiri mönnum og átti mun meira eftir í lokin.Valur-ÍBV 6-5 (1-1) 0-1 Elísa Viðarsdóttir (13:09) 1-1 Telma Ólafsdóttir (11:39)- Hálfleikur - 1-2 Svana Rún Hermannsdóttir (18:21) 2-2 Sigríður Lára Garðarsdóttir (18.08) 2-3 Sóley Guðmundsdóttir (17;57) 2-4 Hlíf Hauksdóttir (7:02) 2-5 Elísa Viðarsdóttir (6:08) 3-5 Dóra María Lárusdóttir (4:31) 4-5 Elín Metta Jensen (1:53) 5-5 Svava Rós Guðmundsdóttir (1:47) 6-5 Svava Rós Guðmundsdóttir (0:03)
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira