Keppti í sænskum þætti 31. maí 2012 07:30 Linda Ósk Valdimarsdóttir, dansari, kom fram í hæfileikakeppninni Rampljuset sem sýnd er á SVT.
Dansarinn Linda Ósk Valdimarsdóttir var stödd í Svíþjóð fyrir helgi þar sem hún var við upptökur á sænska sjónvarpsþættinum Rampljuset. Þættirnir njóta mikilla vinsælda meðal sænskra ungmenna og hafa töluvert áhorf. Linda Ósk er eigandi dansskólans Rebel Dance Studio og dansar að auki með Rebel-dansflokknum. Hún segir framleiðendur Rampljuset hafa séð dansmyndbönd hennar á Netinu og í kjölfarið fengið hana til að koma fram í þáttunum sem sýndir verða í ágúst. Þættirnir eru hæfileikakeppni fyrir börn og unglinga í anda X-Factor þáttanna og eru sýndir í sænska ríkissjónvarpinu. „Frænka mín benti konu að nafni Guðrún Hauksdóttir á mig, en hún sér einmitt um að fá fólk í þættina. Það eru fjögur atriði sem keppa í hverjum þætti og ég keppti á móti töframanni, beatboxara og tvíburum sem sýndu listir á einhjóli," segir Linda Ósk sem hreppti annað sætið. Óvanalegt er að keppendur í Rampljuset komi utan Svíþjóðar enda er þátturinn ætlaður sænskum börnum og ungmennum. Þátturinn fer að sjálfsögðu fram á sænsku og þurfti Linda Ósk að gera sér upp sænskukunnáttu á meðan hún hlýddi á umsagnir dómaranna. „Ég brosti bara og kinkaði kolli á meðan dómararnir töluðu við mig enda skildi ég ekki orð. Þau þýddu allt svo fyrir mig eftir tökurnar." Linda Ósk stundar helst street-dans en einnig djassdans, nútímadans og hiphop og hélt nokkur dansnámskeið í Malmö á meðan á dvöl hennar stóð. Aðsóknin á námskeiðin var svo góð að Linda hyggst fara aftur út í haust og halda fleiri. „Þetta verður vonandi ágætur stökkpallur fyrir mig inn í danssenuna úti og það var frábært að hafa getað nýtt tækifærið og komið Dance Rebel út fyrir landsteinana. Mér hafa einnig boðist nokkur starfstilboð í Svíþjóð sem ég er að íhuga og það er ekki útilokað að ég flytji þangað í haust," segir Linda Ósk að lokum. Rebel Dance Studio heldur námskeið hér á landi í næstu viku. Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu dansskólans rebeldancestudio.is. - sm
Lífið Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira