Tilvistarbætur Bergsteinn Sigurðsson skrifar 23. maí 2012 08:00 Ég hjó eftir sitthvorri fréttinni um tengd efni í gær. Sú fyrri var um að samtök stuðningsmanna aðildar Íslands að ESB hefðu látið útbúa reiknivél þar sem hægt er að bera saman húsnæðislán á Íslandi og í evruríki. Dæmi: Hafi maður tekið húsnæðislán í janúar 2006 upp á 18,5 milljónir á Íslandi væru eftirstöðvarnar nú rúmlega 27,5 milljónir. Lánið hefði sem sagt hækkað um níu milljónir króna. Hafi maður tekið jafnhátt lán í evruríki á sama tíma væru eftirstöðvarnar nú aftur á móti 15,5 milljónir. Lánið hefði sem sagt lækkað um þrjár milljónir króna. Mismunur á þessum tveimur lánum er tólf milljónir króna. Seinni fréttin fjallaði um að velferðarráðherra ætli að leggja fram frumvarp sem gerir ráð fyrir að vaxtabætur og húsaleigubætur verði lagðar niður en í stað þeirra teknar upp húsnæðisbætur, sem verða óháðar búsetuformi. Með öðrum orðum eiga þeir sem annað hvort eiga húsnæði (lesist: eru með það í kaupleigu af bankanum sínum) eða leigja það, rétt á jöfnum húsnæðisbótum. Sem þýðir að nokkurn veginn allir fullveðja einstaklingar eiga rétt á bótum fyrir það eitt að búa einhvers staðar. Þetta er geggjað fyrirkomulag. Í fyrsta lagi er hættan sú að þetta eigi eftir að verða skammgóður vermir; húsnæðisbætur verði til þess að leiguverð hækki og leigjendur standi eftir í hlandblautum skóm. Í öðru lagi felur þetta fyrirkomulag í sér opinbera viðurkenningu á því að á Íslandi er ekki hægt að koma þaki yfir höfuðið, hvort heldur er á leigumarkaði eða með því að kaupa eigin fasteign, án þess að reisa sér hurðarás um öxl. Því þurfi ríkið að niðurgreiða allt íbúðarhúsnæði með skattfé. Við erum einu skrefi frá því að byrja að greiða fólki bætur fyrir að vera til. Þetta fyrirkomulag sem ríkisstjórnin, með fulltingi fulltrúa úr öllum flokkum, ætlar að innleiða er fyrst og fremst vísbending um það að húsnæðiskerfið á Íslandi er handónýtt. Annars vegar er húsnæðisverð of hátt til að nokkur hafi efni á að kaupa en á hinn bóginn má húsnæðisverð ekki lækka því þá lenda alltof margir í kröggum. Við erum sem sagt föst í ömurlegri pattstöðu og allar tilraunir til að reyna að laga vandann með plástrum og bótum í stað þess að ráðast að rót vandans eru dæmdar til að mistakast. Þetta böl er ekki lengur hægt að bæta með því að tala um eitthvað annað. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bergsteinn Sigurðsson Mest lesið Niðurlæging Íslensku Hamingjuþjóðarinnar Sigurður Sigurðsson Skoðun Nýju fötin keisarans og „óráð“ forsetans Ágúst Kvaran Skoðun Að breyta lofti í stein Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Litlir karlar sem leiðist lýðræði Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Lærum af sögunni: Segjum NEI við ESB! Jón Gerald Sullenberger Skoðun Góð áminning um „Birkenstock-liðið“ sem heldur samfélaginu gangandi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason Skoðun Hjálp, það á að breyta malbikinu mínu! Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Góð áminning um sanngirni Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Í stríði við náttúruna - baráttan um landið Ólafur Valsson Skoðun
Góð áminning um „Birkenstock-liðið“ sem heldur samfélaginu gangandi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun
Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason Skoðun
Góð áminning um „Birkenstock-liðið“ sem heldur samfélaginu gangandi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun
Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason Skoðun