Skoðun

Jöfnuður eykst

Nú liggur fyrir með skýrum hætti að tekjujöfnuður á Íslandi hefur aukist umtalsvert í tíð núverandi ríkisstjórnar. Ný skýrsla frá Hagstofunni um tekjudreifingu landsmanna sýnir þetta greinilega. Mæling Hagstofunnar sýnir hvernig tekjur Íslendinga dreifðust á árinu 2011 en þessar tekjumælingar hófust árið 2004.

Tekjudreifingin á árinu 2011 var jafnari en hún hefur verið frá árinu 2004. Tekjuhæsti fimmtungur landsmanna hafði á árinu 2011 um 3,3 sinnum hærri tekjur en sá lægsti. Til samanburðar var þetta hlutfall 4,2 árið 2009. Gini-stuðullinn svokallaði, sem er annar mælikvarði á tekjudreifingu, var 23,6 á nýliðnu ári en fór hæst í 29,6 í lok valdatíma Sjálfstæðisflokksins 2009.

Þessi þróun er afar jákvæð að mínu mati. Ísland er komið aftur heim, heim í hóp norrænna jafnaðarsamfélaga.

Hagstofutölurnar ættu ekki að koma á óvart. Ofurlaun í fjármálatengdum greinum hafa að mestu horfið enda reyndust heldur betur fúnar undirstöður undir þeim. Tekjudreifingin nú er heilbrigðari en hún var á góðæristímanum. Staðan í dag er orðin mun líkari því sem áður sást á Íslandi. Nú eru skipstjórar og yfirmenn á fengsælustu fiskiskipunum í hópi þeirra tekjuhæstu, sú var hins vegar ekki raunin á góðæristímanum svokallaða.

Í skýrslu Hagstofunnar kemur jafnframt fram að árið 2011 voru 13,6% Íslendinga undir lágtekjumörkum eða í hættu á félagslegri einangrun. Árið 2010 var Ísland með lægsta hlutfallið meðal þeirra Evrópulanda sem standa að þessari tegund af mælingu. Ekki svo slæmt að eiga Evrópumet af því tagi í landi sem er að koma út úr mestu kreppu sögu sinnar sem sjálfstæðs ríkis.

Þessar tölur undirstrika að stefna stjórnvalda um að jafna kjörin á erfiðum tímum er nú að ganga eftir. Þetta hefur náðst fram með margvíslegum aðgerðum, m.a. með hækkuðum vaxtabótum, því að hafa hlíft velferðarkerfinu eins og kostur er fyrir niðurskurði, en einkum og sér í lagi þó skattkerfisbreytingum. Þrepaskiptur tekjuskattur sem hefur varið hina tekjulægstu fyrir skattahækkunum, frítekjumark í fjármagnstekjuskatti sem hlífir venjulegum sparnaði og margt fleira á allt þátt í þeirri tekjujöfnun sem niðurstöður Hagstofunnar staðfesta. Skylt er að nefna líka útfærslu undangenginna kjarasamninga sem hafa lyft lægstu launum umfram almennar hækkanir. Með öllu þessu höfum við náð að verja velferðarsamfélagið okkar á erfiðum tímum. Með auknum hagvexti og minnkandi atvinnuleysi á næstu árum munum við vonandi geta aukið kaupmátt og lækkað enn frekar hlutfall þeirra sem lenda undir ofangreindum lágtekjumörkum eða eru í hættu á félagslegri einangrun.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×