Öll þjónusta á einum stað 13. mars 2012 11:00 Stærsti hlutinn er framleiddur á Guðríðarstíg 6 til 8 í Grafarholti, í húsakynnum fyrirtækisins Margt smátt.
Margt smátt er auglýsingavörufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og framleiðslu á auglýsinga- og gjafavöru fyrir fyrirtæki og félagasamtök. Að sögn markaðsstjórans Árna Esra er einn helsti kostur fyrirtækisins að öll þjónusta er á einum stað. „Mestur hluti framleiðslunnar og sala fer fram í húsakynnum okkar að Guðríðarstíg 6 til 8 í Grafarholti. Það er ótvírætt mikil hagræðing að því fyrir viðskiptavininn að geta nálgast alla þjónustuna á einum stað. Þeir hafa fyrir löngu áttað sig á því enda höfum við frá stofnun fyrirtækisins Margt smátt árið 1988 þjónustað öll helstu fyrirtæki og félagasamtök landsins,“ bendir hann á. „Við erum stolt að því að vinna fyrir vörumerki eins og Coca-Cola og Disney en við erum með samninga við þessa aðila og höfum leyfi til höndla með þeirra vörumerki en til þess að fá þetta leyfi þurfti félagið okkar að fara í gegnum talsverða naflaskoðun sem við stóðumst með sóma.“ Viðskiptavinir geta fengið ráðgjöf hjá fyrirtækinu sér að kostnaðarlausu að sögn Árna. „Viðskiptavinum er í sjálfsvald sett hvort þeir mæta í kynningu til okkar eða fá söluráðgjafa á staðinn, en hjá Mörgu smáu starfa 22 starfsmenn og þar af eru sjö reyndir sölumenn.“ Hann lýsir ferlinu með eftirfarandi hætti: „Viðskiptavinir okkar útskýra hvað stendur til og við leggjum á móti til hugmyndir þar til lending næst. Sumir panta vörur fyrir sérstök tilefni, til dæmis ráðstefnur, afmæli, jólin, sumardaginn fyrsta eða kaupauka með sinni vöru eða þjónustu. Með öðrum viðskiptavinum vinnum við kannski heildarplan út árið og það er lítið mál að bregðast við því þar sem vöruúrvalið er ótrúlega breitt.“ Til marks um það bendir Árni á þá ólíku vöruflokka sem Margt smátt býður; skrifstofuvörur, heimilisvörur, ráðstefnuvörur, golfvörur, fatnað og allt þar á milli. „Við erum með lausnir frá a til ö fyrir fyrirtæki enda umboðsaðilar fyrir sterkustu og virtustu birgja á þessu sviði í Evrópu. Auk þess eigum við í viðskiptum við framleiðendur í Asíu og eftir þörfum getum við útvegað sérframleidda vöru á hagstæðu verði með tiltölulega stuttum fyrirvara.“ Vandaður bæklingur Árlega útbýr Margt smátt vandaðan bækling sem er dreift í stóru upplagi á landsvísu. „Við erum eitt af fáum fyrirtækjum hér heima í þessu fagi sem gefur reglulega út bækling á íslensku með verði í íslenskum krónum og erum því með sérstöðu hvað það varðar. Í þessum bæklingi eru yfir 2.500 hugmyndir, vörur sem eru þverskurður af því sem við bjóðum, fyrir heimilið, skrifstofuna, sumarfríið og svo framvegis,“ útskýrir Árni. „Hann er eimitt í dreifingu núna fyrir árið 2012.“
Mest lesið Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Neytendur Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Viðskipti innlent Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent Afsláttardagar skýri skyndilega hækkun bensínverðs Neytendur Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma Viðskipti innlent Sleppir ekki pítsunum þrátt fyrir eitt óhappatilvik Neytendur Strætómiðinn mun kosta 690 krónur eftir áramót Neytendur Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Fleiri fréttir Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Sjá meira
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent