Forseti Landsdóms krafði Össur um nöfn 10. mars 2012 08:00 Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra bar vitni um störf forvera síns á stóli forsætisráðherra fyrir Landsdómi í gær. Fréttablaðið/GVA
Báðir bankastjórar Landsbankans fullyrtu við seðlabankastjóra að yfirtaka ríkisins á Glitni hefði engin áhrif á hina bankana. Þetta kom fram í vitnisburði Össurar Skarphéðinssonar fyrir Landsdómi. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra telur forvera sinn hafa gert allt sem hann gat til að afstýra bankahruni árið 2008. „Mér kom aldrei til huga að einhver banki myndi rúlla, svo ég upplýsi fávísi mína," sagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fyrir Landsdómi í gær, spurður um hvernig hann hafi metið stöðuna í kringum páskana 2008. Össur, sem var iðnaðarráðherra þegar bankakerfið hrundi, sagði að síðar hafi runnið á hann tvær grímur. Hann hafi þess vegna spurt á fundi í Seðlabankanum 28. september hvaða áhrif yfirtaka ríkisins á 75 prósenta hlut í Glitni kynni að hafa. Þar hafi hann verið fullvissaður um að hinir bankarnir myndu ekki fara í þrot í kjölfar þeirrar aðgerðar. Markús Sigurbjörnsson, forseti Landsdóms, spurði Össur nánar út í þetta atvik, og vildi fá að vita hver eða hverjir það hafi verið sem hafi fullvissað Össur um að hinir bankarnir myndu ekki falla. Össur sagðist hafa spurt þessarar spurningar þrisvar. Í fyrsta skiptið á fundinum í Seðlabankanum. Þar hafi hann verið upplýstur um að Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, hafi fullyrt þetta daginn áður. Trúði ekki Davíð Oddssyni„Ég held að það hafi verið þáverandi seðlabankastjóri [Davíð Oddsson] sem sagði þetta. Ég var ekki alveg vissum að hann hafi sagt mér satt," sagði Össur. Hann hafi því spurt annan starfsmann Seðlabankans sem setið hafi fundinn með Sigurjóni í einrúmi þegar þeir brugðu sér á sama tíma á salernið, en fengið sömu svör. Síðar sama kvöld segist Össur hafa spurt Davíð aftur. Davíð hafi þá rætt í síma við Halldór J. Kristjánsson, bankastjóra Landsbankans, og hafi hann svarað á sama veg og Sigurjón. „Ég held að Geir [H. Haarde] hafi gert allt sem í hans valdi stóð […] til að taka á þessum vanda," sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í vitnisburði hennar fyrir Landsdómi í gær. Hún sagði Geir, sem er ákærður fyrir Landsdómi fyrir vanrækslu í aðdraganda bankahrunsins, meðal annars hafa beitt sér fyrir því að styrkja gjaldeyrisvarasjóð Íslands með gjaldmiðlaskiptasamningum við Danmörku, Svíþjóð og Noreg. Auk þess hafi hann og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi utanríkisráðherra reynt að leysa lausafjárvanda bankanna, meðal annars með því að vinna gegn neikvæðri ímynd íslensku bankanna. Rætt var innan ríkisstjórnarinnar árið 2008 að viðskiptabankarnir þrír væru of stórir, en Jóhanna sagði ekki hægt að saka Geir um að hafa ekki brugðist við þeirri stöðu. Enginn hafi bent á þær aðgerðir sem hægt hefði verið að grípa til árið 2008 til að minnka efnahagsreikning bankanna. Andrúmsloftið hafi verið afar viðkvæmt, og allt sem sagt hafi verið hafi getað haft áhrif á bankana. Þetta er svipað viðhorf og heyrst hefur frá öðrum stjórnmálamönnum og embættismönnum sem borið hafa vitni. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, sem bar vitni á undan Jóhönnu í gær, var sömu skoðunar. Hann sagðist enn ekki hafa hitt þann mann sem hafi geta bent á hvernig hefði verið hægt að framkvæma það á árinu 2008. Glæpir sem jaðra við landráðÖssur Skarphéðinsson heilsaði Sigríði Friðjónsdóttur, saksóknara Alþingis, þegar hann gekk í salinn í gær.Fréttablaðið/GVAJóhanna var harðorð í garð Seðlabankans, og sagðist eins og aðrir hafa tekið mark á skýrslum sem frá bankanum komu árið 2008. Í skýrslu sem kom út í maí hafi komið fram að staða bankanna væri góð, og það hafi róað hana. Eftir á að hyggja hafi verið afar sérkennilegt að bankinn hafi látið slík plögg frá sér á þessum tíma. Mikið uppnám varð á ríkisstjórnarfundi þann 30. september 2008 þegar Davíð Oddsson, þáverandi formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands, kom óvænt á fundinn, sagði Jóhanna. Hún sagði í gær að Davíð hafi greint ríkisstjórninni frá því að bankakerfið væri að hrynja, og hafi nánast talið að loka þyrfti landinu. Þá segir hún Davíð hafa viljað að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sem þá sat viki, og þjóðstjórn tæki við völdum. Jóhanna orðaði það þannig í gær að ekki hafi allir verið ánægðir með þá hugmynd Davíðs, enda varð hún ekki að veruleika. Össur lýsti fundinum með Davíð í meiri smáatriðum. Hann sagði ríkisstjórnarfundinn hafa verið byrjaðan þegar Geir hafi verið kallaður af fundi, sem sé í sjálfu sér mjög óvenjulegt. Davíð hafi svo fylgt Geir inn á fundinn. Á fundinum greindi Davíð ríkisstjórninni frá því að ekki hafi tekist að bjarga málunum með því að leggja Glitni til hlutafé frá ríkinu tveimur dögum fyrr, sagði Össur. Það hafi verið gert að undirlagi Davíðs. Viðbrögð markaðarins voru ekki eins og reiknað hafði verið með, lánshæfismat bankanna féllu og lánalínur þornuðu. Þá sagði Össur að Davíð hafi notað „nokkur vel valin orð" yfir eigendur tveggja „tilgreindra" banka. Hann sagði að rétt væri að stórefla efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra því eigendur bankanna tveggja hafi framið glæpaverk sem jaðraði við landráð. Össur nefndi bankana ekki á nafn. Í skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika frá því í maí það sama ár fengu Kaupþing og Glitnir mun lakari umsögn en Landsbankinn. Mismeðvituð um samráðshópÖssur sagði að Davíð hafi ekki fyrr varað við alvarlegri stöðu íslenska fjármálakerfisins í sín eyru. Eins og Jóhanna sagðist hann hafa treyst skýrslu Seðlabankans sem út kom í maí 2008 þar sem bankarnir voru sagðir standa traustum fótum. „Skýrslan frá Seðlabankanum í maí var túlkað þannig af fjölmiðlum og stjórnmálamönnum að staða bankanna væri í lagi," sagði Össur. Jóhanna sagðist fyrst hafa heyrt af starfi samráðshóps um fjármálastöðugleika árið 2006. Í hópnum sátu fulltrúar forsætisráðuneytisins, fjármálaráðuneytis, viðskiptaráðuneytis, Fjármálaeftirlits og Seðlabanka. Geir er meðal annars sakaður um að hafa ekki beitt sér fyrir því að vinna hópsins væri markvissari. Jóhanna sagðist hafa heyrt af samráðshópnum í svari þáverandi viðskiptaráðherra við fyrirspurn hennar á Alþingi árið 2006. Össur virðist ekki hafa fylgst með þeirri fyrirspurn samflokkskonu sinnar því hann sagði fyrir Landsdómi í gær að hann hafi fyrst heyrt af tilvist samráðshópsins á ríkisstjórnarfundi í mars 2008. Hann sagðist eftir það hafa talið að hópurinn ætti að vinna að einhvers konar viðbragðsáætlun vegna fjármálaáfalls og fylgjast grannt með stöðu mála. Össur ekki rétti maðurinnIngibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi formaður Samfylkingarinnar, vildi ekki að Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi viðskiptaráðherra, yrði látinn vita af fundi æðstu ráðamanna um yfirtöku á 75 prósenta hlut í Glitni haustið 2008, sagði Össur. Hann segir Ingibjörgu, sem var þá stödd í Bandaríkjunum, hafa hringt í sig klukkan 18 á sunnudegi og beðið sig að vera fulltrúa sinn og Samfylkingarinnar á fundi með forsætisráðherra, seðlabankastjóra og fleirum. Össur sagðist ekki hafa haft mikinn áhuga á því, hann hafi ekki talið sjálfan sig rétta manninn til að sitja slíkan fund, enda bankamál fjarri hans sérsviði. Ingibjörg hafi talið hann á að fara, og sent með honum Jón Þór Sturluson, aðstoðarmann Björgvins. Össur sagðist hafa viljað hringja í Björgvin, en Ingibjörg hafi ekki viljað það. Þegar leið á fundinn hringdu Össur og Jón Þór í aðra ráðherra Samfylkingarinnar til að fá umboð þeirra til að taka ákvarðanir í nafni flokksins.
Landsdómur Mest lesið Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Innlent Missti stjórn á bílnum og keyrði á fimm Erlent Málið áfall fyrir embættið Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent Ráðherra vill að leigubílsstjórar tali íslensku Innlent Fjölmiðlanefnd tekur fyrir umfjöllun Fréttarinnar Innlent Jafnréttisstofa kallar eftir svörum frá Ingu vegna skipunar í stjórn HMS Innlent Grunar að fleiri lögreglumenn hafi verið viðriðnir njósnirnar Innlent Mál Ásthildar Lóu krufið fyrir opnum tjöldum Innlent Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins Innlent Fleiri fréttir Hætta framleiðslu innanhúss og segja upp fólki Kristófer Breki nýr formaður Vöku Skýrsla starfshóps um lagaumgjörð hvalveiða tilbúin Gætu þurft að endurskoða aukastörf lögreglumanna Mjöll Snæsdóttir er látin Jafnréttisstofa kallar eftir svörum frá Ingu vegna skipunar í stjórn HMS Grunar að fleiri lögreglumenn hafi verið viðriðnir njósnirnar Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Jafnréttisstofa krefur Ingu Sæland um útskýringu á vali á stjórnarmönnum „Það er ekkert til sem heitir að heita trúnaði um fundarbeiðni“ Fjölmiðlanefnd tekur fyrir umfjöllun Fréttarinnar Ráðherra vill að leigubílsstjórar tali íslensku Mál Ásthildar Lóu krufið fyrir opnum tjöldum Vill að þingflokkar vinni saman að því að stytta frí þingmanna Mikilvægt að vita hvar og hvernig réttar upplýsingar fást í krísuástandi Málið áfall fyrir embættið Skiptar skoðanir á stöðvarskyldu: „Held að enginn vilji hverfa aftur í það ástand“ „Miklu svakalegra en ég gerði mér grein fyrir“ Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins Boðar brottfararstöð fyrir hælisleitendur Óttaðist hið versta þegar allar tengingar rofnuðu Furðar sig á umdeildri Exit-auglýsingu og hækkar veiðigjöldin Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Hræðilegt að missa samskipti við umheiminn og veiðigjöldin Varðstjóri leystur undan vinnuskyldu vegna gruns um njósnir Vesturbæingar búa sig undir fjögurra vikna sundlaugarlokun Mikill reykur vegna elds í bílatætara Vill taka upp stöðvarskyldu tveimur árum eftir að hún var afnumin Ný stjórn Ríkisútvarpsins kjörin Létt í lund þrátt fyrir margra klukkustunda bið eftir Lissabon Sjá meira
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent